Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.1996, Blaðsíða 6

Ægir - 01.02.1996, Blaðsíða 6
Enga „kortér í þrjú“ gæja Hilmar Snorrason skólastjóri Slysavarnaskóla sjómanna hvetur menn til dáða „Það er verið að ganga frá því um þessar mundir á hvaða höfnum Sæbjörg mun hafa viðdvöl í sum- ar til námskeiðahalds. Það er reiknað með sex höfnum svo ekki fá allir heimsókn sem vilja. Ég vil Um áramótin 1996/97 tekur gildi breyting á lögum um lögskráningu sjó- manna og verbur þá óheimilt aö lögskrá sjómenn nema þeir hafi tekið þátt í ör- yggisnámskeiði Slysavarnaskóla sjó- manna í Sæbjörgu eða öðrum sambæri- legum skólum. Upphaflega átti þessi breyting að taka gildi um nýliöin ára- mót en sýnt var að skipstjórnendur svæfu á verðinum og ómögulegt yrði að uppfylla ákvæði laganna í tíma. Yfirmenn óttuðust réttindamissi „Það vildu allir komast á námskeið hvetja sjómenn til að skipuleggja námskeiðshald ársins nú þegar. Við viljum enga „kortér í þrjú“ gæja,“ sagði Hilmar Snorrason skólastjóri í Slysavarnaskóla sjó- manna. milli jóla og nýjárs," sagði Hilmar. „Við hefðum getab haldið 10 til 15 námskeið á þessum fáu dögum en það gekk auö- vitað ekki upp. Þetta var með öðru, ástæða þess ab Alþingi ákvab ab fresta gildistöku laganna." Námskeiðin taka fjóra daga en einnig eru í boði fimm daga námskeið sem ætl- uð eru nemendum sjómannaskóla en starfandi sjómenn sitja oft slík nám- skeið með nemendunum. „Það varð nokkur kurr vegna þessara laga því yfirmenn virtust óttast að með þeim væri verið ab taka af þeim tiltekin atvinnuréttindi en það er misskilning- ur. Þab er hins vegar veriö ab setja mönnum ákveðin skilyrði fyrir því að nýta starfsréttindi sín hér á iandi." Eins og er gilda námskeiðin í ótak- markaðan tíma en Hilmar telur rökrétt framhald að setja á þau tímamörk til þess að tryggja að sjómenn endurnýi þessa kunnáttu sína á nokkurra ára fresti. Slakinn er talsverður En vita menn hve marga sjómenn vantar öryggisfræðslu? Er mikill slaki sem verður að draga inn á þessu ári? „Það er erfitt að segja til um það. Mér finnst slakinn vera talsverður miðað við það sem ég heyri menn tala um. Hér hafa farið í gegn rúmlega 10 þúsund nemendur á þeim 10 árum sem skólinn hefur starfað. Sumir hafa komið oftar en einu sinni og svo er talsverö endurnýj- un í hópi sjómanna svo þær tölur gefa frekar ótrygga vísbendingu um þann fjölda sem enn á námskeiði ólokið." Hilmar telur að vísbending um árang- ur starfs Slysavarnaskólans felist í tölum um fjölda tilkynntra slysa meðal sjó- manna en þab er eini mælikvarðinn sem hægt er að styöjast við. „Það voru tilkynnt 459 slys á sjó- mönnum til Tryggingastofnunar á ár- inu 1995. Það er auðvitað alltof há slysa- tíðni og há miðað við þau lönd sem við miöum okkur við. En þab er huggun harmi gegn ab slysin eru færri en árið áður og slysatíðni meðal sjómanna hef- ur fariö lækkandi undanfarin þrjú ár sem vib teljum sýna ab starf okkar sé að bera árangur. Það er hins vegar þjóðarheill að slys- um fækki á sjó og þar sem stjórnvöld greiða niður þessa fræbslu er ekki ósanngjarnt að sjómenn séu skyldaðir til þess að afla sér þekkingar í öryggis- málum." □ Hilmar Snorrason skólastjóri Slysavarnaskóla sjómanna segir nauðsynlegt að tryggja sér pláss á öryggisnámskeiði sem fyrst. 6 ÆGIR

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.