Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.1996, Blaðsíða 44

Ægir - 01.02.1996, Blaðsíða 44
Á niðurfærslugír er aflúttak sem við tengist riðstraumsrafall frá Stamford af gerð MSC 734B, afköst 744 kW (930 KVA), 3(380 V, 50Hz. Hjálparvélar eru tvær frá Mitsubishi með Stamford rið- straumsrafölum. Vélarnar eru af gerð S6NMP TAIC, 418 kW (568 hö) við 1500 sn/mín. Hvor vél knýr 384 KW (480 KVA), 3 x 380 V, 50 Hz rafal. Stýrisbúnaður: Stýrisvél er rafstýrð og vökvaknúin frá Ten- fjord af gerð 4M 140. Vélakerfi dieselvéla: Fyrir brennsluolíu- og smurolíukerfið eru tvær skilvindur frá Westfalia af gerð OTB 2-00-066. Ræsi- loftþjöppur eru tvær frá Espholin af gerð H-2S, afköst 11.1 m3/klst við 30 bar þrýsting hvor. Fyrir vélarúm og loftnotkun véla er einn rafdrifinn 2ja hraða blásari, afköst tvöföld loft- notkun véla. Rafkerfi: Rafkerfi skipsins er 380 V riðstraumur fyrir mót- ora og stærri notendur og 220 V riðstraumur til ljósa og al- mennra nota í íbúðum. Hjálparvélarafalar eru með sam- keyrslubúnaði. í skipinu er 40 KVA, 380 V landtenging. Ýmis skipskerfi: Skipið er búið ferskvatnsframleiðslutæki frá Alfa Laval, afköst 3 tonn á sólarhring. Fyrir geyma er tank- mælikerfi frá Ulstein Peilo A/S, gerð Soundfast 831-202/105. Austurskilja er frá Heli-sep, gerð 500, afköst 0.5 tonn á klst. Fyrir véiarúm er Halon 1301 slökkvikerfi. Kerfi fyrir vistarverur: íbúðir eru hitaðar upp með miðstöðv- arofnum sem fá varma frá kælivatni aðalvélar um varmaskipti og rafelement til vara. íbúðir eru loftræstar með rafdrifnum blásurum, blástur inn og sogblásarar fyrir eldhús og snyrti- klefa. Fyrir hreinlætiskerfi er ferskvatnsþrýstikerfi frá Bryne Mek Verksted með 250 1 kút. Fyrir salerni er sérstakt vakúm- kerfi frá Evak. Vökvaþrýstikerfi: Fyrir vökvaknúinn vindubúnað er vökva- þrýstikerfi (lágþrýstikerfi) frá A/S Hydraulik Brattvaag og er um að ræða fjórar rafdrifnar snigildælur (Allweiler), 1450 sn/mín, knúnar af Nebb rafmótorum, sem eru: Tvær SNS 1300, knúnar af 90 kW rafmótorum, tvær SNS 940, knúnar af 65 kW rafmótorum. Fyrir ísgálga, lúgur, búnað á vinnslu- þilfari o.fl. eru rafdrifin vökvaþrýstikerfi (háþrýstikerfi). Stýr- isvél er búin tveimur rafdrifnum dælum. Kœlikerfi (frystikerfi): Fyrir frystitæki og frystilestar er kæli- kerfi (frystikerfi) frá Sabroe með Freon 22 kælimiðli. Kæli- þjöppur eru þrjár: Ein Sabroe SAB 128 H-F, knúin af 84 kW raf- mótor, kæliafköst 106600 kcal/klst við -35°C/+20°C, ein Bitzer OSN 7461 K, kæliafköst 53750 kcal/klst við -35°C/ +30°C, og ein Bitzer OST 7061, kæliafköst 53750 kcal/klst við - 35°C/+30°C. Fyrir matvælageymslur er Bock kæliþjappa. íbúðir Almeimt: Ibúðir eru samtals fyrir 19 menn í átta 2ja manna klefum og þremur eins manns klefum. íbúðir eru á þremur hæðum framskips, þ.e. á neðra þilfari, efra þilfari í aðskildum þilfarshúsum, og á bakkaþilfari. Neðra þilfar: í íbúðarými á neðra þilfari eru fremst tveir tveggja manna klefar, en b.b.-megin er hlífðarfata- og þvotta- herbergi með tveimur snyrtiklefum (salerni og sturtu). Efra þilfar: í s.b.-þilfarshúsi eru þrír tveggja manna klefar, og snyrting með salerni og sturtu. í b.b.-þilfarshúsi er fremst matvælageymsla, þá selernisklefi, en þar fyrir aftan borðsalur og setustofa (samtengt), eldhús og aftast matvælageymslur (kælir og frystir). Bakkaþilfar: í íbúðarými á bakkaþilfari eru þrír eins manns klefar búnir sérsnyrtingu fyrir yfirmenn (skipstjóri, yfirvél- stjóri og 1. stýrimaöur), og þrír 2ja manna klefar. Aftast fyrir miðju er snyrting með salerni og sturtu, auk klefa fyrir loft- ræstingu og rafbúnað. íbúðir eru einangraðar með ull (150-200mm) og klæddar með plasthúðuðum spónaplötum. Vinnuþilfar (fiskvinnslurými Móttaka afla: Framan við skutrennu eru tvær vökvaknúnar fiskilúgur, sem veita aðgang að fiskmóttöku, aftast á vinnu- þilfari. Fiskmóttöku er skipt í tvo geyma, og er hleypt úr henni um tvær vökvaknúnar lúgur á framþili. í efri brún skutrennu er vökvaknúinn skutrennuloki. Vinnslubúnaður: Skipiö er búið rækjuvinnslubúnaði frá Carnitech. Búnaður er til flokkunar, suðu, pökkunar og fryst- ingar; tvær flokkunarvélar af gerð BSL, tveir olíukyntir sjóðar- ar af gerð OA 60/3 og tvöfalt kerfi fyrir Japans-rækju. Tölvu- vogir eru Póls, fjórar af gerð S 55, bindiv'élar tvær frá Strapex og ein Odin kassabrotsvél. 44 ÆGIR

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.