Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.1996, Blaðsíða 13

Ægir - 01.02.1996, Blaðsíða 13
1 dollar til þess að við gætum siglt hon- um niðureftir. Þetta gekk allt vel en þegar skipið kom til Perú þá sagði ég við kall- inn að nú ætlaði ég að græða 100% og seldi honum skipið aftur á 2 dollara. Þetta voru stórskemmtileg viðskipti og þeir hafa mikið skipt við okkur síðan." Björgvin segist vera í samstarfi við kollega sína í nokkrum öðrum löndum og þeir skiptist á upplýsingum og hafi með sér samstarf en þess utan sé hann með um það bil 300 viðskiptavini á skrá. Yfirleitt er reynt að fá aðila til þess að nálgast hvor annan og helst að fá skriflegar yfirlýsingar um vilja til við- skipta frá báðum aðilum áður en menn fara að skoða skipin. Einnig tíðkast að kaupendur greiði 10% inná til þess að tryggja viðskiptin. „Þetta er til þess að foröast að selj- endur kippi að sér hendinni á síðustu stundu því oft eru menn aðeins að kanna markaðsverðmæti skipa sinna og ætla ekkert að selja. Þetta reynum við að forðast með því að hafa helst enga milli- rússnesku farþegaskipi sem liggur í Istan- búl í Tyrklandi. Leitað að rækjuskipum En aö hverju eru íslenskir útgerðar- menn helst að leita um þessar mundir? „Það eru nokkrir útgeröarmenn að leita að 35-40 metra löngum skipum sem gætu hentað til rækjuveiða. Það er ekki mikið í boði á verði sem markaður- inn ræður við. Það er of mikið að kaupa svona skip 10-15 ára görnul á 200 millj- ónir. Stærri togarar eru einfaldlega ekki í boði en menn eru alltaf til í að skoða ef sæmileg skip bjóðast. Verðiö er hátt á notuðum skipum og fer hækkandi því sjávarútvegur er víða í uppsveiflu." Við fjármögnum endurnýjun nótaveiðiskipa Skotanna „Það er alltaf verið að leita að notuð- um nótaskipum en þau eru varla í boði. Þessi skip sem menn hafa verið að kaupa héðan frá Skotlandi hafa verið alltof dýr. „Að kaupa skip sem er smíðað í Rúss- landi, allt á rússnesku, engir varahlutir og enginn Rússi sem fylgir með, það er ekki sniðugt svo menn hafa dálítið leigt þessi skip með fullri áhöfn. Þau eru víða og skip eins og þau sem lágu í Hafnar- firði í allt sumar eru nokkuð í umferð. Þetta eru skip sem seljast á 2-3 milljónir dollara." Björgvin er mjög ósáttur við þær úr- eldingarreglur sem Þróunarsjóðurinn hefur unnið eftir sem hann segir að hafi orðið til þess að of ný skip voru seld úr landi og því vanti skip í flotann. Þetta birtist í því að ný skip sem voru seld úr landi geta komið inn aftur ef leyfi fæst því eftirspurn er fyrir hendi. „Við seldum Hálfdán í Búð ÍS til Nýja- Sjálands. Nú er hann til sölu aftur og við erum að skoða málið fyrir íslenskan kaupanda og höfum gert tilboð háð því að leyfi fáist til að flytja skipið inn aftur. Þetta finnst mér hálfgerð öfugþróun því þetta skip hefði aldrei átt að fara úr landi." Björg\’in Ólafsson skipasali segir að eftirspum sé meiri en framboð á góðum notuðum skipum. Hann gagnrýnir stefnu stjórnvalda varð- andi lireldingu fiskiskipafiotans sem hann segir m.a. ieiða til þess að við séum að kaupa nótaveiðiskip frá Skotlandi of dýru verði. liði milli okkar og kúnnana. Þab er mik- ilvægt að vera í beinu sambandi." Þessu starfi fylgja mikil ferðalög vítt og breitt um heiminn, oft með stuttum fyrirvara. Stundum er hringt um miðja nótt og skipasalinn þarf ab vera mættur á tilteknum stab daginn eftir. Björgvin hefur því farið víða í tengslum við starfið og er nú t.d. að reyna að koma á sölu á Þau voru ekki til sölu nema á því verbi sem seljandi vildi fá. Okkar úreldingar- reglur eru aftan úr fornöld og þess vegna erum vib í rauninni að fjármagna endur- nýjun hjá þessum nágrönnum okkar." Margir hafa rennt hýru auga til Rúss- lands þar sem mörg fiskiskip eru föl en Björgvin segir ab því fylgi mörg vanda- mál og menn séu ragir við að kaupa. En þurfa skipasalar að vera góðir sölu- menn eða selja góð skip sig sjálf? „Góður sölumaður er sá sem segir alitaf sannleikann. Þú platar ekki skipum inn á menn. Það er hörð alþjóðleg sam- keppni í þessum bransa og við erum í viðskiptum við sömu aðila hvað eftir annað, ár eftir ár. Þetta er því aðeins hægt að menn séu heiðarlegir." □ ægir 13

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.