Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.1996, Blaðsíða 15

Ægir - 01.02.1996, Blaðsíða 15
Hvalbátamir fjórir eru einu gufuskipin á íslenskri skipaskrá og eru að verða safngripir í fleiri en einum skilningi. en það reyndi lítið á það þar sem ekki var leyft að taka nema þrjá hvali, tvær lang- reyðar og eina sandreyði, í hverjum túr. Veiðarnar fóru þannig fram í stórum dráttum að lónað var á miðunum og skyggnst eftir hvölum. Fjórir hásetar skiptust á um að standa í tunnunni og rýna út yfir hafið en tveir yfirmenn og einn háseti stóbu á opnum stjórnpalli á brúarþaki og skyggndu hafflötinn. Ekki var leitað með bergmálstækjum því hval- urinn vildi fælast þegar hann varð var við hljóðbylgjurnar og voru slík tæki tekin úr hvalbátunum og sett í land. Þó var sagt að veiðimenn í Suöurhöfum notuðu hljóðbylgjur til þess að fæla hvalinn og sigla hann svo uppi þegar hann lagöi á flótta en það var ekki tíðkað á íslandi. Þokan var verst Þegar hvalur hafði verið skutlaður gat tekið nokkurn tíma að draga hann að síð- unni og koma honum fyrir svo hægt væri að sigla í land. Hvalurinn drapst yf- irleitt strax en dauður hvalur er þungur og stundum höfbu farið út meira en 200 faðmar af vír. Til þess að draga úr rykkj- um og átökum á hvalskutulinn var vír- inn úr honum tengdur við langt gorma- kerfi sem nábi langt niður í iður skipsins og tók slinkinn af þegar aldan lyfti skip- inu en undiraldan getur lyft skipi 5-8 metra. Hægt var að eiga við veiöarnar þó einhver kaldi væri en hvalbátarnir eru mjög djúpristir og fara því vel í sjó. Verst var ef hann lagðist að með þoku. Þá gat þurft að dóla á miöum marga daga og láta reka meðan beðið var færis á hval. Eins og gefur ab skilja er lítið sem ekk- ert lestarrými á svona skipi því veiðin kemur aldrei um borð. Lestarrýmið er því aðeins fyrir vinnuaðstöbu og geymslur. íbúðirnar eru vistlegar og ekki eins og maður gæti búist við um borö í fimmtugu skipi, enda hafa innréttingar verið endur- nýjabar. Fornfáleg stigahandrið lúð af höndum kynslóða hvalfangara er það eina sem minnir á háan aldur skipsins. Það er frekar fátt af tækjum í brúnni miðaö vib nútíma fiskiskip enda aðeins þörf á stab- setningartækjum þar sem augun eru hin eiginlegu fiskileitartæki á hvalveibum. Með kældan sjó í æðum Þegar gengið er um vélarúmið bendir Rafn á frystipressu sem gegndi nokkuð sérstöku hlutverki við hvalveiðarnar. Þeg- ar hvalur var kominn á síbuna var skorið á stóra æð við sporðinn og slanga tengd við æðakerfið og kældum sjó dælt um æbar hvalsins til þess að halda kjötinu fersku þangað til komiö var í land. Lík- amshiti hvala er um 37 gráður og áður en þessi vinnubrögð voru tekin upp var iðu- lega fullur hiti inn vib hrygg hvalsins þeg- ar komið var meb hann að landi eftir sól- arhring eba meira. Þetta mun hafa verið séríslensk aðferð við kælingu á nýskutluð- um hval. Meðan tíminn líður og þingmenn ráða ráðum sínum um framhald hvalveiða bíba þolinmóðir öldungar við bryggjuna. En geta þeir beðið lengi? „Ég skal ekkert um það segja," segir Rafn. „í dag erum við tilbúnir, hvað sem verður á morgun." □ Vel sóttur fundur Fiskifélags íslands Fiskifélag íslands boðaði til fundar um ástand þorskstofnsins á Hótel Sögu 12. febrúar og var fundurinn mjög vel sóttur. Framsögu hafði Gunnar Stefánsson tölfræðingur Hafrannsóknastofnunar en auk hans tóku bæði Jakob Jakobsson og Ólafur Karvel Pálsson til máls fyrir hönd Hafró. Fundarstjóri var Einar K. Guðfinnsson formaður Fiskifélagsins. Fjölmargir fulltrúar sjómanna, hags- munasamtaka og ýmsir áhugamenn um sjávarútveg sátu fundinn og beindu fjölda fyrirspurna til framsögumanna og skipt- ust á skoðunum. Fram kom á fundinum að Hafró hyggst færa út kvíarnar í rannsóknum á miðunum og koma á nokkurskonar bátaralli sem færi fram með neta- veiðum á hrygningarslóð í samvinnu við netabáta auk togararallsins sem mikið var rætt á fundinum. Hart var sótt að forsvarsmönnum Hafró en þeir kváðust engin merki sjá um að hægt að væri að leyfa auknar þorskveiðar á þessu ári, þrátt fyrir staðhæfingar sjómanna um aukna þorskgengd. ægir 1 5

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.