Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.1996, Blaðsíða 17

Ægir - 01.02.1996, Blaðsíða 17
Skýr krafa um opinbert eftirlit Ymsir hafa orðiö til þess að gagnrýna það verklag sem var viðhaft þegar þessar breytingar voru gerðar. Þórður Ásgeirs- son fiskistofustjóri sagði í viðtali við Ægi í nóvember 1994: „Þetta var satt ab segja ekkert undir- búið ... Löggjafinn ætlaðist til þess að töfrasprota yrði veifað yfir heila atvinnu- grein og nýjar reglur tóku gildi án nokk- urs aðlögunartíma." Síðar í sama viðtali fjallar Þórður um vankanta núverandi kerfis og segir: „í vibræðum vib ESB og Bandaríkja- menn um gagnkvæma viðurkenningu gæðaeftirlits hefur komið fram skýr krafa um öflugt opinbert eftirlit. Menn viður- kenna að sjálfstæðar skoðunarstofur geti unnið verk sín vel en treysta þeim ekki fullkomlega. Það sem menn setja spurn- ingarmerki við eru náin tengsl skoðun- arstofanna við stærstu fyrirtækin í fisk- iðnaði." Mikið eftirlit en lítil samræming Sturlaugur Daðason forstöðumaður Sturlaugur Daða- son forstjóri skoð- unarstofu SH segir það kröfu inarkað- arins að opinbert eftirlit sé fyrir hendi. skoðunarstofu Sölumiðstöðvar hrað- frystihúsanna sagði í samtali við Ægi að það væri skýr krafa stærstu viðskipta- landa að einhvers konar opinbert eftirlit bæri lokaábyrgðina. „Hitt er svo annað mál að það þarf að skilgreina betur bæði hér og í Evrópu hvar innra eftirlit fyrirtækjanna endar og hið opinbera eftirlit tekur við. Hér er þetta í raun alveg skýrt, að Fiskistofa og sjávarútvegsráðuneytið bera endanlega ábyrgð á eftirlitinu, en skýrari skilgreininga er þörf." Sturlaugur sagði að viðskiptamenn SH kvörtuðu mikið undan of miklu eftirliti og lítilli samræmingu í því, þ.e. ólíkir eft- irlitsaðilar væru að skoða sömu hlutina. „Mér finnst líklegt að fela megi skoð- unarstofunum stærra hlutverk en þær hafa haft til þessa." Fiskistofa lítur eftir starfsemi skoðun- arstofa með tvennum hætti. Annars veg- ar fara eftirlitsmenn Fiskistofu í einstök fyrirtæki og gera úttekt sem þeir bera síð- an saman við úttekt skoðunarstofunnar á sama fyrirtæki. Hins vegar kanna þeir skoðunarstofurnar sjálfar og athuga hvort færslur þeirra séu í samræmi við laganna skikk. Það er ekki aðeins að öllum fisk- vinnslu- og matvælafyrirtækjum sé skylt að hafa samning við skoðunarstofur heldur falla öll skip og bátar sem veiði- leyfi hafa undir lögin um meðferð sjáv- arafurða og eftirlit með þeim, allt frá smæstu trillum upp í stærstu vinnslu- skip. Ljóst er að það risavaxna verkefni að breyta eftirlitsmálum sjávarútvegsins hefur tekist að mörgu leyti snurðulítiö. Óskum útgerð og áhöfn innilega til hamingju með skipið. Aðalvél skipsins er frá DEUTZ MWM gerð SBV 12M 628 NllkYNI VELSMIÐJA 5^ LANGHOLTSVEGI 109, POSTHOLF 4207, 124 REYKJAVIK SÍMI 588 9325, FAX 588 9318 ÆGIR 1 7

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.