Ægir

Årgang

Ægir - 01.02.1996, Side 14

Ægir - 01.02.1996, Side 14
Oldungar í hvíldarstöðu: Hvalbátarnir vinsælustu fyrirsætur vid höfnina „Það er engin spurning að þessir bát- ar eru vinsælustu fyrirsæturnar við höfnina. Hingað koma rútur hlaðnar af túristum og á gagngert að sýna þeim hvalbátana enda eru þetta sennilega að verða með sjaldgæfari skipum," sagði Rafn Magnússon kennari og vélstjóri í samtali við Ægi. Rafn hefur veriö vélstjóri hjá Hval hf. óslitið frá árinu 1954 og hans embætti nú er að hafa umsjón meb hvalbátunum fjórum sem liggja í Reykjavíkurhöfn og bíða þess að hvalveiöar verði leyfðar á ný. Þar hafa þeir legið síðan 1989, þegar vís- indaveiðar á hvölum voru aflagöar, og em að verða fastur hluti af landslagi hafnar- innar. Tveir þeirra eru í topplagi en tveir lentu á hafsbotni 1986 þegar skemmdar- verkamenn frá umhverfisverndarsamtök- unum Sea Shepherd sökktu þeim í höfn- inni. í jreim er vélbúnaður allur í lagi en innréttingar skemmdust töluvert við óhappið og þyrfti að endurnýja þær ef gera ætti skipin út. „Ef til þess kæmi þá gætum við sett Hval 8 og Hval 9 í gang og þeir gætu siglt til veiöa meb skömmum fyrirvara," sagði Rafn sem var vélstjóri um borð frá 1954 til 1971 þegar hann fór í land til starfa í hvalstöðinni. Fyrirrennarar núverandi báta voru byggöir milli 1925 og 1935. „Ég var á Hval 2 og síðan á Hval 7. Þetta þótti ágætt starf en ég var nýútskrif- aður og ekki vanur sjómennsku. Mér lík- aöi þetta afskaplega vel," segir Rafn. Síðustu gufubátarnir Elsti báturinn er Hvalur 7 sem er smíð- aður 1945 í Middlesborough í Bretlandi en systurskip hans Hvalur 6 er módel 1946. Hinir tveir eru norsk smíði frá 1948 og 1952. Allir hvalbátarnir em með gufu- vélum, einu íslensku skipin sem enn em á skrá með gufuvél, en í fiskiskipum sáust þær síðast í nokkrum nýsköpunartogar- anna. Vélarnar eru 1800 til 2100 hestöfl og voru lengi eini orkugjafinn um borð en skömmu eftir 1980 voru settar dísil- knúnar ljósavélar um borð. Síðast var hvalbátunum siglt 1990 þegar þeir fóru til Rafn Magnússon vélstjórí lítur eftir hval- bátunum og segir aö tveir þeirra geti halclið til veiða með skömmum fyrirvara. Hann var sjálfiir vélstjóri á hvalveiðum í 17 ár. Vestmannaeyja í sandblástur á skrokk og yfirhalningu. Nú eru þeir tengdir við raf- magn og hita úr landi og aöalvélar aldrei settar í gang. „Ég hef þá reglu að á tveggja mánaða fresti set ég ljósavélamar í gagn og sný að- alvélunum með rafmagni. Ég gæti auövit- að sett þær í gang en það er óþarfi." Yfir veturinn kemur Rafn með reglu- legu millibili um borð og iítur eftir að allt sé í lagi en yfir sumarið dyttar hann að ýmsu sem aflaga vill fara, smyr og blettar. En hverjir eru helstu kostir gufuvéla séu þær bornar saman við dísilvélar? Þurfti ekki heyrnarhlífar „Ég veit nú ekki hve hagstæöur saman- burðurinn er. Þessar vélar nýta kraftinn frekar illa út í skrúfu og em mun dýrari í rekstri en dísilvélarnar. Þær nota svartolíu til að kynda katlana sem framleiða guf- una. Stærsti kosturinn er auðvitað gagn- vart áhöfninni því þessar vélar em afskap- lega þýðar og hljóðlátar. Þær snúast mest 150 snúninga og þetta er afar þægilegt. Maður var yfirleitt ekki með heyrnarhlífar í vélarrúminu heldur hafði útvarpið í gangi." Gufan var ekki bara notuð til að snúa skrúfunni heldur einnig til þess að knýja stýrisvél og snúa rafölum og sjá skipinu fyrir orku. Það er kúnstugt að koma aftur í stýrisvélarrúmið og sjá stórkarlalega gufuknúða stýrisvél sem þar er enn, en við hlið hennar nútíminn í líki vökva- knúinnar stýrisvélar sem tekur 10 sinnum minna pláss. Keyrsla á gufuvél lýtur sér- stökum lögmálum sem Rafn kann upp á sína tíu fingur og tilheyrir þannig hópi fárra vélstjóra núorðið sem hafa reynslu af slíku. Þar sem hvalbátarnir eru einu gufu- skipin sem enn em eftir í gangi og á skrá koma þeir að gagni við kennslu í Vélskól- anum en þegar verið er að kenna nem- endum undirstöðuatriðin í katlafræði fer Rafn yfirleitt með hópinn um borð ásamt viðkomandi kennara og sýnir þeim hvernig raunverulegt gufuvélarúm lítur út. Fátt er kennt um sjálfa gufuvélafræð- ina í skólanum enda þess ekki talin þörf. 3 tonn af vatni á dag Hvalbátarnir gátu gengið mest 15 míl- ur og gufuvélamar notuðu um 3 tonn af vatni á dag og gat hvert skip veriö úti í allt að 20 daga ef því var að skipta. Mjög sjaldan reyndi á svo langar útivistir því skylt var hvalskutlurum að koma með hvalinn að landi eigi síðar en 26 tímum eftir að hann var skotinn. Hvalirnir vom dregnir á síðunum og gat báturinn verið með allt að fjóra á hvorri síðu eöa átta alls 1 4 ÆGIR

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.