Ægir - 01.03.1999, Qupperneq 7
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
Loðnumjöl hleðst upp vegna verðfalls á mörkuðum og útlitið ekki gott fyrir
síldar- og kolmunnavertíð:
Veiðireynslan í kolmunna
mikilvægari en bágt ástand
á mjölmörkuðum
Verðlœkkun á fiskitnjöli og lýsi
hefur orðið hraðari að undan-
fómu en dœmi eru um í langati tíma.
Svo fór að nokktir mjölframleiðendur
hœttu að taka á móti loðnu þó svo að
vertíð vœri ekki lokið enda hlóðust
birgðir afmjöli upp eftir áramótin og
ekki lítlit fyrir stórbreytingu á
mörkuðum á nœstunni. Framundan
er síldarvertíð og sókn í kolmunna og
Ijóst er að tslenskar útgerðir œtla að
ná góðum árangri í koltnunnaveiðum
í sutttar til að hafa sterkari stöðu
þegar kemur að því að tegundin
verður kvótasett. í mjöliðnaði er ugg-
ur í mörgum yfir nœstu mánuðutn og
Ijóst að ttiikil fratnleiðsla á
kolmunnamjöli tnun ekki bœta
ástandið á mjölmörkuðum. Svo virð-
ist sem ekki sé utn anttað að rœða en
víkja til hliðar sjónarmiðum um
tnjölverð ett láta veiðirétt í kolmunna
gattga fyrir.
Leita þarf langt aftur í tímann til að
finna jafn lágt verð á mjöl- og lýsis-
mörkuðum og nú er. Hinni hröðu
verðlækkun á afurðunum, sérstaklega
nú eftir áramótin, er líkt við að spila-
borg hafi hrunið.
Skýringarnar á verðfallinu eru
margar. Uppskera á sojabaunum var
góð og sojamjöl er í samkeppni við
fiskimjölið á mörkuðum og hefur oft
gert usla. Á hitt ber einnig að líta að
efnahagsdýfan í Brasilíu í haust gerði
að verkum að þaðan flæddi sojamjöl á
mjög lágu verði, enda þjóðin í mikilli
þörf fyrir peninga. í Perú náði
uppsjávarveiðin sér á strik í haust og
þess fór fljótt að gæta í mjölverði.
Veiðar Perúmanna hafa gengið illa
undanfarin ár og þeim var því (líkt og
Brasilíumönnum) kappsmál að koma
afurðum í verð, þó lágt væri.
Engin breyting á næstunni
Jón Reynir Magnússon, forstjóri SR-
mjöls hf., er ekki bjartsýnn á að verð
hækki hratt. Það virðist því ljóst að
menn verða að laga sig að lágu mjöl-
og lýsisverði út þetta ár, að minnsta
kosti.
„Verðfallið í lýsinu er enn meira en
í mjölinu en við verðum að hafa í
huga að bæði í mjöli og lýsi vorum við
að sjá mjög hátt verð á síðasta ári,"
segir Jón Reynir.
Tvær hliðar
á kolmunnaveiðunum
Mikill kolmunnaaiíi í sumar hefur
augljóslega tvær hliðar. Sú jákvæða er
að veiðiréttur íslendinga styrkist - sú
neikvæða að meiri birgðasöfnun í
mjöli getur frestað verðhækkunum.
„Persónulega finnst mér að í fyrra
hafi verið ofborgað fyrir kolmunnann
hjá fiskimjölsverksmiðjunum," segir
Jón Reynir, „en réttlætingin var sú að
við íslendingar vorum að gera tilraun
með kolmunnaveiðar. Þess vegna voru
forsendurnar fyrir hráefnisverðinu
Aukinn afli í Chile
og Perú
Eftir áralangan aflabrest er nú
útlit fyrir vaxandi afla uppsjávar-
fiska í Chile og Perú. Petta skiptir
íslendinga verulegu máli, enda
keppa mjölafurðir frá löndunum
tveimur við t.d. íslenskt mjöl á
mörkuðunum. í nóvember 1998
nam aflinn í Perú 743 þúsund
tonnum, sem er 22% aukning frá
nóvember 1997. Á tímabilinu janúar
til nóvember 1998 nam heildaraflinn
í Perú 3,5 milljónum lonna.
Ársaflinn gæti samkvæmt því orðið
ailt að 4 milljónum tonna. Til
samanburðar má geta þess að
heildarafli Perú 1987 var 7,8
milljónir tonna.
AGIR 7