Ægir - 01.03.1999, Side 19
/
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
Úr KBG í fiskinn
Fyrrum háttsettur foringi í rúss-
nesku leyniþjónustunni og ráðgjafi
Bórisar Jeltsíns hefur verið skipaður
yfirmaður rússnesku fiskveiðinefnd-
arinnar. Skipun hans í embættið
kom í kjölfar mikillar umfjöllunar
fjölmiðla um slæmt ástand í
fiskiðnaði landsins þar sem viðgeng-
ist hefði óskráður útflutningur fisks
fyrir hundruð milljarða króna.
Meira eftirlit með útflutningi gæti
þýtt minna framboð Rússafisks til
vinnslu í löndum Vestur-Evrópu.
(Fishing News International)
Netasalan með nýjan
netaniðurleggj ara
'\Telasalan ehf. Iiefur hafið söln á
1 \ netaniðurleggjurum fyrir neta-
bátaflotann frá NET-OP í Danmörku.
Niðurleggjarinn vinnur með þeim
hœtti að hann dregur netin frá neta-
spilinu oggreiðir um leið úrþeirn
áður en þau fara í kassa eða kör.
NET-OP niðurleggjarinn er ólíkur
öðrum tegundum sem áður hafa verið
fluttar til landsins að því leyti að á
honum eru tveir rótorar í stað eins.
Þetta gerir að verkum að krafturinn
eykst sem kemur sér afar vel við erfið-
ar aðstæður og þegar þörf er fyrir meiri
átök í drættinum. Einnig kemur þessi
aukni kraftur sér vel þegar draga þarf
netin lengri leið en frá spili, eins og
t.d. þegar draga þarf netin upp úr lest.
Fyrir grásleppubáta kemur aukinn
kraftur sem fylgir því að hafa tvo rót-
ora sér vel þegar þari og önnur óhrein-
indi setjast í netin. NET-OP niðurleggj-
arinn er þó svipaður öðrum niður-
leggjurum að því leyti að lása þarf
sundur á milli trossa.
Áki Thoroddsen, starfsmaður Neta-
sölunnar, segir að niðurleggjarinn
vinni á við 1-2 menn og því sé mikið
hagræði af tækinu fyrir þá sem stunda
netaveiðar. Hann segir tækið einnig
henta sérstaklega vel fyrir frambyggða
báta en koma megi tækinu fyrir á nær
öllum gerðum báta.
„Niðurleggjarinn er fljótlegur í upp-
setningu. Það er gert ráð fyrir að hann
sé festur í bómu eða gálga yfir neta-
kassanum en einnig má festa hann á
braut eða tjakk sem gengur fram og til
baka yfir netakassanum svo að netin
leggist betur niður," segir Áki.
NET-OP niðurleggjarinn kemur í
fjórum stærðum sem henta misstórum
bátum. Mótorarnir eru vökvaknúnir
og er olíuþörfin í minnsta tækinu 17-
20 L/mín, heildarbreiddin er 67 cm og
lengdin er 107 cm. Næsta stærð fyrir
ofan gerir ráð fyrir 20-25 L/mín, heild-
arbreiddin er 79,5 cm og lengdin er
119 cm. Næst stærsti niðurleggjarinn
þarf 25-30 L/mín, heildarbreiddin er
92 cm og lengdin er 130 cm. Stærsta
gerðin þarf sama glussamagn og sá fyr-
ir neðan eða 25-30 L/mín en breiddin
er 139 cm og lengdin er 130 cm.
Björgólfur Bjömsson og Áki Thoroddsen, sölumenn hjá Netasölunni, Imlda hér á
netaniðurleggjaranum á milli sínu.
MCm 19