Ægir - 01.03.1999, Side 28
Icedan ehf. í Hafnarjirði
Hnútalaust net
að valda byltingu
Hnútalaust net sem lcedan flytur inn og selur. Þorsteinn G. Benediktsson, framkvœmda-
stjóri Icedan segir styrk netsins mun meiri en hefBbundins 'hnútanets.
Tcedait ehf. í Hafnarfirði er
J. fyrirtœki ineð 10 starfsmönnum
sem flytur inn búnað í veiðarfœri og
aðrar vörur fyrir sjávarútveginn.
Icedan framleiðir seiðaskiljur tneð
neti bœði fyrir rcekjutroU og fiskitroll
en annast einnig uppsetningar á nýj-
um „rockhopperi'-lengjum, ásaint við-
haldi ágömlunt lengjum. Á síðasta
ári fœrði fyrirtœkið út kvíarnar ineð
stofnun nýs fyrirtœkis á Nýfundna-
landi, Icedan Canada Inc. Fyrirtœkið
er í eigin 1200 fennetra húsnœði í
St.John's oger í raun spegilmynd af
fyrirtœkinu hér á íslandi livað varðar
þjónustu og lagenírval, enda með
söinu umboð og Icedan hér heitna.
„Það sem er óhætt að kalla
„spútnik" vöru hjá Icedan er hnúta-
lausa dyneema netið frá Net Systems,"
segir Þorsteinn G. Benediktsson,
framkvæmdastjóri hjá Icedan.
„Það er óhætt að segja að nánast öll
ný rækjutroll fyrir rækjutogarana sem
sett hafa verið upp á undangengnu ári
eru með hnútalausa dyneema netið í
belgnum og skvernum, þó nokkrir
hafi einnig notað netið í vængina. Að-
alkostur netsins er sá að það er fléttað,
þannig að netið fer ekki í tætiur þegar
það rifnar. Einnig er þægilegt að gera
við netið þar eð ekki dregst til í
þessarri gerð. Styrkur netsins er mikill
enda engir hnútar en þeir eru aðal
veikleiki nets - það missir um 40% af
styrk sínum vegna hnútanna. Það má
taka fram að Net Systems er eini fram-
leiðandinn af þessarri gerð nets. Ég vil
benda á vegna tíðs misskilnings að
það er á markaðnum snúið hnútalaust
dyneema net sem stenst engan veginn
sömu gæði og fléttaða hnútalausa net-
ið frá Net Systems," segir Þorsteinn.
Hnútalaust í dragnótina
Fyrsta dragnótin úr þessu efni var sett
upp af S.H veiðarfærum í Grindavík í
byrjun mars, fyrir dragnótarbátinn
Arnar KE. Nótin er öll sett upp úr
hnútalausa dyneema netinu, að pok-
anum undanskildum, og segir
Þorsteinn að skipstjórinn hafi sagt
netið lofa mjög góðu. „Þá fer að stytt-
ast í að fyrsti flottrollsbelgurinn úr Dy-
neema hnútalausa netinu verði settur
upp en um er að ræða 800, 400, 200
og 160 mm möskvastærðir."
Nokkur skip nota fléttað PE hnúta-
laust svart net í trollpokann. Árangur-
inn segir Þorsteinn að sé sá að netið
haldi fiski mun betur enda breytist
möskvarnir ekki. Einnig fari þessi gerð
nets mun betur með hold fisksins.
Um þessa mynd má kannski segja að öllu ganmi fylgi nokkur alvara vegna þess að hér
heldur Þorsteinn G. Benediktsson, framkvcvmdastjóri Icedan, á neti úr ofurefhinu
dyneema sem hefði þurft lyftara til að lyfta efum vœri að ræða hefðbundið net.
28 M3ÁIR