Ægir

Volume

Ægir - 01.03.1999, Page 36

Ægir - 01.03.1999, Page 36
úti í þrjú og hálft ár á sama sviði, þar af eitt og hálft ár hjá skólanum og hin árin tvö hjá Nofi Tromsö AS, þar sem ég vann einnig að sölu- og markaðs- málum. Á árunum 1990-1993 var ég með í nánast öllum þeim rannsóknar- leiðöngrum sem farnir voru á norsk- um togurum við þróun skiljunnar. Nofi AS í Tromsö tók þátt í þróun skilj- unnar frá upphafi og stofnaði ásamt öðru fyrirtæki og uppfinningamann- inum Roger Larsen fyrirtækið Selfi AS sem seinna fékk einkaleyfi á skilj- unni." Af orðum Jóns Einars má ráða að þessi fyrirtæki séu brautryðjendur í heiminum í gerð smáfiskaskilja og því má segja að Jón Einar hafi fyrstur ís- lendinga flutt þessa þekkingu til landsins. í samvinnu við Hafrannsóknastofn- un og Síldarvinnsluna hf. voru fyrstu tilraunir hérlendis með Sort-X smá- fiskaskiljuna gerðar um borð í Bjarti NK 121 sumarið 1994. Þær tilraunir komu mjög vel út og þegar Jón Einar flutti til landsins gerðist hann um- boðsmaður fyrir Selfi As. á íslandi og Netagerð Friðriks Vilhjálmssonar hf. er eina fyrirtækið hér á landi sem hefur leyfi til að framleiða skiljuna. Jón Einar segir að veiðafæragerð á íslandi sé einsdæmi að því leyti að að- eins hér sé þetta iðngrein. „Hvergi sem ég þekki til annars staðar er svo. Hins vegar eru víða mjög góðir fagmenn þótt þeir hafi ekki farið í gegnum skóla og þá vantar þar af leiðandi vissulega ýmsa bóklega þekk- ingu en óhætt er að segja að íslenskir netagerðarmenn séu eftirsóttir erlend- is. Sífellt þróaðri veiðarfæri - Hver hefur þróunin í gerð veiðarfæra verið? „Það má kannski segja að stærsta þróunin sem verið hefur á undanförn- um árum sé þróun á skiljum fyrir ýms- ar gerðir togveiðarfæra og þeirri þróun fylgir að menn geta í dag nánast < 36 < rnm Steindór Bjömsson, netagerðarmeistari, við sniáfiskaskilju frá Netagerð FV. skammtað sér þá stærð af fiski sem þeir vilja veiða og einnig tegundir. Þá hafa einnig verið þróuð ný efni til veiðarfæragerðar en það eru svokölluð „ofurefni" sem hafa það í för með sér að hægt er að nota grennra garn, sem þýðir léttari veiðafæri og minni mót- staða í sjónum. Svo sterk eru sum þessara efna að þau koma jafnvel í stað víra. Einnig hafa veiðarfærin stækkað með stærri skipum á undan- förnum árum." Fyrirtækin of smá - Hver er staða íslenskra netagerða? „Það sem helst háir netagerðum á íslandi er að fyrirtækin eru of smá. Netagerðirnar þyrftu að vera stærri og ég held að sú þróun eigi eftir að verða að netagerðunum muni fækka og fyrirtækin stækka. Útgerðarfyrirtækin hafa stækkað og krafan um hag- kvæmni eykst á öllum sviðum og til þess að geta boðið betri þjónustu og ódýrari vörur þurfi einingarnar að vera stærri. Stærri fyrirtæki hafa einnig meira svigrúm til að stunda eigin vöruþróun. Einnig háir það greininni að of margir milliliðir eru frá framleið- anda á vörum til veiðarfæragerðar og útgerðanna. Netagerðirnar ættu að vera heildsalar framleiðendanna þannig að við gætum keypt vöruna beint af framleiðanda og selt áfram til útgerða en í dag eru margir milliliðir í þessu ferli. Oft þurfum við að kaupa vörurnar af umboðsmönnum sem einnig, í mörgum tilfellum, selja vör- una beint til útgerðanna og mörg netaverkstæði lenda í því að selja ein- göngu vinnu. Umboðsmönnum hefur fækkað hér á landi og ég held að sú þróun muni halda áfram. Nútíma samskiptatækni ýtir undir það." Ari Sigurjónsson vinnur í djúpnót Barkar NK.

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.