Ægir - 01.03.1999, Blaðsíða 45
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEOI
til einstakra samanburðarrannsókna á
trollveiðum. „Með þessu skipi verður
auðveldara að auka veiðarfærarann-
sóknirnar, sér í lagi í togveiðunum."
Hrafnkell viðurkennir að þunga-
miðjan í veiðarfærarannsóknum hafi
beinst að togveiðum en í gegnum tíð-
ina hefur einnig verið sinnt mörgum
rannsóknarverkefnum á neta-, línu-
og nótaveiðum. Nú í apríl stendur
einmitt fyrir dyrum athyglisvert rann-
sóknarverkefni á krókaveiðisviðinu -
en Hrafnkell vill að svo komnu máli
ekki upplýsa frekar um hugmyndina
sem þar býr að baki.
Takmörkuð vitnsekja um áhrif
á botninn og botnlífríkið
Hvernig fara togveiðarfæri með botn-
inn og lífríkið við botninn? Þetta er
spurning sem oft kemur upp í umræð-
unni og einkennandi er að við henni
er augljóslega ekki til eitt ábyggilegt
Nú er utmiö að rannsóknum á áhrifúm
togveiðarfcera á hafsbotninn.
svar. „Það er rétt að vitneskjan á þessu
máli er alltof takmörkuð hjá okkur.
Fyrsta botnrannsóknin stendur yfir
núna og við förum að nálgast frum-
niðurstöður hennar. í framhaldinu
verður haldið áfram verkefni sem
snýst um áhrif togveiðarfæra á lífríki
botns. En hvað varðar t.d. kóralum-
ræðuna, sem upp kom í haust, þá
stöndum við höllum fæti varðandi
svör um áhrif togveiðarfæranna," segir
Hrafnkell. Hann bendir á að með
stækkandi veiðarfærum hljóti að vera
augljóst að áhrifin á botninn verði
meiri. Til að mynda sé í undirbúningi
að gera tilraun með nýjan búnað fyrir
tveggja trolla tog. Hingað til hefur
nokkurra tonna þungt lóð verið dregið
eftir botninum milli trollanna til að
halda þeim réttum og opnum. Allir sjá
að slíkur þungi hlýtur að hafa veruleg
áhrif, í t.d. á leirbotni. „Nú hafa
komið til okkar menn með hugmynd-
ir um að beturumbæta þetta lóð og
gera tveggja trolla veiðiskapinn vist-
vænni.
Þetta verkefni er dæmi um að til
okkar er oft komið með hugmyndir að
lausnum á vandamálum í sambandi
við veiðarfæri og slíkt er mjög já-
kvætt," segir Hrafnkell Eiríksson.
Vantar þig:
Aðstoð við vökvakerfið.
Viðbót við vökvakerfíð.
Rör eða fittings.
Háþrýstislöngur.
Loka af ýmsum gerðum.
Mótora eða dælur.
Spilverk
HAGGLUNDS
DRIVES
Spilverk ehf
Skemmuvegi 8
40 Kópavogur
Sími: 544 5600
Fax: 544 5301
E-mail spilverk@itn.is
DRIVES
Hafðu samband.
Við lofum góðum verðum og góðri þjónustu.
Slöngusmíði
Háþrýstirör
Fittings
DENISON Hydraulics
VGI2 45