Ægir - 01.03.1999, Blaðsíða 59
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
3508B, 8 strokka V-byggð fjórgengis
vél með afgasblásara og millikæli. Vél-
in er með tölvustýrðri eldsneytisinn-
sprautun og samkvæmt upplýsingum
Caterpillar eyðir hún 153 gr/höt við
786 hestöfl og 1200 sn/mín eða 150
gr/höt við 604 hö og 1100 sn/mín,
eins og vélin sett upp og keyrð í
Emmu. Til skýringar skammstöfuninni
gr/höt er þá stendur hún fyrir eyðslu,
þ.e. grömm eldsneytis til að framleiða
eitt hestafl í eina klukkustund.
Vélin tengist niðurfærslugír með
þremur aflúttökum fyrir tvær spildæl-
ur og Stamford ásrafala af gerðinni
MSC-334, 108 kW. Skrúfugírinn er frá
Ulstein af gerðinni 220-AGSC3KP með
niðurgíruninni 5,35:1. Skrúfubúnaður-
inn og stýrishringur er frá sama fram-
leiðanda. Skrúfan er fjögurra blaða,
2,1 m að þvermáli og snýst 224
sn/mín. Skrúfan er í stýrishring.
Ein ljósavél er í skipinu af gerðinni
Caterpillar 3304 með 80 kW rafal.
Rafkerfi skipsins er 3 x 220/380 V,
50 Hz. í skipinu eru tvær skilvindur
frá Alfa Laval, af gerðinni MAB-103B,
önnur fyrir eldsneytisolíu og hin fyrir
smurolíu.
Utanborðskælir er fyrir kælikerfi að-
al- og ljósavélar. íbúðir eru hitaðar
upp með heitu kælivatni frá vélum og
til vara er rafhitari. Fyrir vélarúm er
Halon 1301 slökkvikerfi.
Fiskilest
Fiskilest er um 210 rúmmetrar að
stærð og útbúin fyrir allt að 128 fiski-
kör (660 1) með uppstillingu úti í síð-
um. Lestin er einangruð með
polyurethan og klædd. Rörakælikerfi
er í lofti lestar og eitt lestarop sem er
1970x1680 mm sem lokast með ál-
hlera með fiskilúgum. Þilfarskrani frá
Heila, HMR-20-11-2S er fyrir löndun
og til brúks á efra þilfari.
Vindubúnaður
Vindu- og losunarbúnaður er vökva-
knúinn frá Rapp Hydema A/S. Um er
að ræða tvær togvindur, fjórar grand-
Togbáturinn Emma VE var smíðaður til
að stunda togveiðar allt að þrjár
sjómílur frá landi. Þegar skipið
var smíðað máttu skip sem
stunduðu veiðar svo nærri
landi ekki vera lengri en 26
metrar. Emma var smíðuð 23
metrar að lengd til að uppfylla
úreldingareglur þess tíma, en
þriggja metra langur bútur
var smíðaður og fluttur
með skipinu heim,
ef fýsilegt
skyldi reynast
að lengja
skipið síðar
meir.
Nú hafa
fiskveiðilögin
verið rýmkuð þannig
að nú mega allt að 29
metra löng skip með aflvísi
undir 1600, stunda þær veiðar sem
Emma gerir. Búturinn sem hafði verið í geymslu
í 10 ár var því sendur í lengingu síðastliðinn vetur til
Póllands og hann lengdur í 5,5 metra. Emma sigldi svo í kjölfarið og var
lengd með bútnum góða og samhliða voru nokkrar aðrar breytingar gerðar á
skipinu.
Helstu birgjar og verktakar
Atlas hf..................................Umboðsaðili skipasmíðastöðvar
Ráðgarður hf..........................................Hönnun og ráðgjöf
Slippfélagið hf....................................Hempels skipamálning
Siglingastofnun........................................Flokkun og eftirlit
Hekla hf...............................................Catepillar aðalvél
Huginn ehf...................................................Netatromla
Radiomiðun hf................................Sailor talstöðvar og GMDSS
Mergi ehf....................................................Europa filter
ÆG,IR 59