Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.2000, Blaðsíða 26

Ægir - 01.02.2000, Blaðsíða 26
SKIPAHÖNNUN Skipatækni hf.: - segir Helgi Kristjánsson, markaðsstjóri Skipatækni hf. telst stærsta fyrirtæki í íslenskri skipahönnun og jafnframt eitt það elsta, 25 ára gamalt. Framkvæmdastjóri þess og annar tveggja stofnenda er Bárður Hafsteinsson, skipaverkfræðingur, en hjá fyrirtækinu starfa 18 manns og að megin uppistöðu til er um að ræða tæknimenntað fólk á skipasviðinu. Skipatækni ehf. er einnig aðili að fjölþjóðlegri keðju hönnunarfyrirtækja, The Vik & Sandvik Group, og segir Helgi Kristjánsson, markaðsstjóri Skipatækni, að fyrirtækið geti með þessu not- fært sér þekkingu í hönnun íslenskra fiskiskipa til að komast í hönnunarverkefni fyr- ir erlendar útgerðir. SKIPATÆKNI M«^ber of Vik-Sandvik Group Hetgi Kristjánsson, markaðstjóri Skipatækni ehf. Ingunn AK að taka á sig mynd í Chite. Vik & Sandvik keðjan er upprunnin í Noregi og inn- an hennar eru fimm aðilar, staðsettir í Noregi, í Pól- landi, á Isiandi og í Kína. „Samstarfið snýr þannig að okkur að sérgrein Skipa- tækni eru fiskiskip, og þá sérstaklega skuttogarar, og þar getum við lagt okkar þekkingu fram í verkefnum fyrir togaraútgerðir eriend- is. Aftur á móti hafa Norð- menn verið mjög framar- lega í hönnun nýrra nóta- skipa og flottrollsveiðiskipa og við sækjum til þeirra eftir hugmyndum sem við síðan útfærum eftir óskum og þörfum útgerða hérna heima. Innan keðjunnar eru einnig fyrirtæki sem sérhæ- fa sig í hönnun flutningaskipa, olíu- og tankskipa, oiíuborskipa og skipa sem þjóna sem varð- og her- skip. Eg tel því að samstarf okkar innan Vik & Sand- vik sé til hagsbóta fyrir Skipatækni og okkar við- skiptavini þar sem sameiginleg þekking samstarfsfyr- irtækjanna spannar sviðið allt frá bátum upp í olíu- borpalla," segir Helgi. Riðu á vaðið í Kína Skipatækni hefur annast hönnunar- vinnu, útboð, verksamninga og eftirlit með smíða- og breytingverkefnum ís- lenskra útgerða á undanförnum árum og nú eru fjögur ný skip í smíðum í Kína og Chile sem fyrirtækið hannaði. Skipa- tækni reið á vaðið með samninga við skipasmíðastöð í Kína vegna smíði á nóta- og flottrollsskipinu Erni KE og í 26 kjölfarið fylgdu fjöldamargir aðrir samningar um smíði í Kína á skipum fyrir íslenskar útgerðir. I októ- ber síðastliðinn var síðan undirritaður smíðasamn- ingur í Kína vegna smíði á 29 metra netabát sem koma á í stað núverandi Happasæls KE 94. Vitað er að Kínverjar hafa lengi haft augastað á smíðum fiski- skipa fyrir útgerðir á Vesturlöndum og kann því að vera að þetta sé aðeins byrjun á holskeflu skipasmíða fyrir Islendinga í Kína. Áhugi á nýsmíðinni greinilegur Auk Arnarins og Happasæls eru í smíðum í Chile tvö nóta- og flottrollsskip sem Skipatækni hannaði, þ.e. Ingunn fyrir Harald Böðvarsson hf. á Akranesi og Huginn VE fyrir Berg-Huginn ehf. í Vestmannaeyj- um. Að hönnun hins nýja fjölveiðiskips Samherja hf. kom Skipatækni einnig og vann það verk á móti sam- starfsaðilum sínum innan Vik & Sandvik hópsins. Af breytingaverkefnum má nefna nýafstaðnar breytingar á togaranum Frera RE og Bergs VE, sem báðar voru unnar í Póllandi. Þessu til viðbótar segir Helgi að Skipatækni hafi komið að mörgum öðrum smærri verkefnum á síðustu mánuðum. „Núna finnum við fyrir því að útgerðir hafa áhuga á nýsmíði og hvað gerist á næstu mánuðum og árum mun ráðast af því hvort núna eru að opnast varanlega möguleikar til ódýrari smíði en áður þekktust," segir Helgi. Skipin að breikka „Það er staðreynd að íslensk fiskiskip hafa tekið mikl- um breytingum á síðustu árum,“ segir Helgi um þá spurningu hvaða þróun megi lesa út úr skipastólnum. „Fyrir fáum árum þótti t.d. mikið að 60 metra lang- ur skuttogari væri 12,60 metrar á breidd. I dag þyk- ir ekki mikið að slíkt skip sé 15 metrar á breidd, auk þess sem skipin eru orðin dýpri, þ.e. lengra milli dekka. Oll skip í dag eru hönnuð út frá því að vera

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.