Ægir - 01.02.2000, Blaðsíða 34
SKIPIN OG TÖLVUTÆKNIN
MaxSea skiptjórnartölvan frá Radíómiðun:
Myndrien framsetnin
í tvi- oq bvívíd
Fyrir tæpum áratug hóf tölvuvæðingin
innreið sína í fiskiskipaflotann og átti
MaxSea skipstjórnartölvan frá Radíomið-
un þar stóran hlut að máli. Jóhann
Bjarnason, framkvæmdastjóri Radíómið-
unar, segir að íslenskir skipstjórnarmenn
hafi komið skjótt auga á þá miklu mögu-
leika sem MaxSea kerfið hafði upp á að
bjóða og þeir hafi verið óhræddir að til-
einka sér þessa tækni og þá með þeim
hætti að sækja MaxSea námskeiðin hjá
Radíomiðun, sem enn séu haldin í hverj-
um mánuði. Mikið vatn hefur runnið til
sjávar síðan og samfara því hefur átt sér
stað gífurlega hröð þróun á sviði hugbún-
aðar og tölvubúnaðar. Þessi öra þróun
hefur sífellt verið beisluð í MaxSea kerf-
inu, að mati Jóhanns, og nú með tilkomu
MaxSea 2D/3D, þar sem framsetning er í
tví- og þrívxdd.
MaxSea 2D - tvívídd
Jóhann segir það engum vafa undirorpið
að bylting hafi orðið þegar hægt var að fá
sjókortin á rafrænu formi með tilkomu
siglingatölva eins og MaxSea, eins og
sýnt er á mynd 1. Skipstjórnandi geti t.d.
skoðað kortin í mismunandi mælikvarða,
plottað togslóðir, merkt inn festur og
fleira. Þrátt fyrir þessa ótvx'ræðu framför
þekki reyndir skipstjónarmenn að ná-
kvæmni hefðbundinna sjókorta sé tak-
mörkuð. Ein leið sem farin hefur verið til
að bæta úr því er að hver notandi getur
safnað inn í MaxSea kerfið dýpisupplýs-
ingum við veiðar. Þetta segir Jóhann að
hafi verið stór kostur en engu að síður sé
það takmarkað sem eitt skip geti safnað
af dýpisupplýsingum.
„Með MaxSea 2D er brotið blað í þess-
ari sögu þar sem fylgir mikið safn dýpis-
upplýsinga af landgrunninu. A grunni
þessara upplýsinga getur notandinn nú
fengið fram jafndýpislínur á nær hvaða
dýpi og dýpissviði sem er, ásamt því að
geta valið þéttleika jafndýpislínanna.
Með þessu móti verður grunnið miklu
mun skýrara og nákvæmara, eins og kem-
ur greinilega fram þegar bornar eru sam-
an mynd 1 og mynd 2,“ segir Jóhann.
Sem dæmi má taka ef viðkomandi er á
veiðum á 100-130 faðma dýpi, þá getur
hann fengið eingöngu fram jafndýpislín-
ur á því sviði, ásamt því að velja þéttleika
línanna, sem ræðst af þeim skala sem við-
komandi er að vinna í hverju sinni.
MaxSea 3D - Þrívídd
Óhætt er að segja að orðatiltækið að ein
mynd segi meira en þúsund orð eigi við
þegar borin er saman framsetning raf-
rænna sjókorta á hefðbundinn hátt í tví-
vídd, við framsetningu sjókorta í þrívídd
eins og nú er mögulegt í MaxSea. Jóhann
segir að einn reyndur skipstjóri hafi haft
um þennan tæknimöguleika eftirfarandi
orð: „ Eg gæti ímyndað mér að þetta væri
eins og fyrir blindan mann að fá sýn.“
Eins og fram hefur komið hér á undan
hefur átt sér stað gífurleg þróun á sviði
hugbúnaðar og tölvubúnaðar og segir Jó-
hann að þökk sér þessari þróun að nú sé
unnt að sjá sjókortin í þrívídd í MaxSea
kefrinu sem byggir á fyrrgreindu gagna-
safni.
„Ekki er einungis hægt að sjá sjókortin
í þrívídd heldur er hægt að velja um mis-
munandi framsetningu, en nokkrir slíkir
möguleikar koma fram á meðfylgjandi
myndum. Samfara þessum möguleikum
er einnig unnt að velja sér sjónarhorn að
vild og færa sig nær eða fjær.
MaxSea 2D/3D gefur möguleika á að
tengja tvo skjái við MaxSea tölvuna. Þeg-
ar unnið er með MaxSea 2D/3D er árang-
ursríkast að hafa hina hefðbundnu tvívíðu
framsetningu á öðrum skjánum ásamt
nýju og nákvæmu safni jafndýpisupplýs-
inga. Á þessum skjá heldur viðkomandi
skipstjórnandi áfram sinni venjulegu
vinni eins og áður. Á hinum skjánum er
sama svæði sýnt í þrívídd, þar sem skipið
er alltaf sýnt á miðri mynd. Botninn er
þvi alltaf birtur í samræmi við siglingar-
hraða og stefnu skipsins ásamt upplýs-
ingum um dýpi undir skipinu hverju
sinni. Fyrir þá sem hafa takmarkað pláss
fyrir auka skjá er unnt að birta þrívíddina
á sama skjánum og þá sem minni mynd.“
Jóhann segir að MaxSea 2D/3D hafi
fengið fádæma góðar viðtökur og sé m.a.
í nokum á 6 tonna trillu og 500 tonna
Mynd 1. Skeijadýpi. Mælikv. 1:1 milljón. Hefðbundin framsetning á rafrænum sjókortum.