Ægir - 01.02.2000, Side 37
Tilraunatankurinn hjá DIFTA þar sem fara fram profanir meó trolllíkönum. Hér eru til að mynda
gerðar tilraunir með búnaó frá islensku fyrirtækjunum Hampiðjunni og J. Hinrikssyni.
fleiri þætti sem tengjast vinnu um borð í
fiskiskipum. Preben, sem er einn af kenn-
urunum við skólann, tók á móti hópnum
og kynnti skólann. Eftir hádegi fóru vfs-
indalegustu mennirnir í hópnum í hávís-
indalega vísindaferð til Hanstholm sem
er m.a. alkunn Islendinganýlenda í Dan-
mörku. Restin af deginum var notuð til
knattspyrnuiðkunnar og sáust þvílík til-
þrif, sérstaklega í vítaspyrnukeppninni!
Tilraunatankurinn hjá DIFTA
Einn af hápunktum Danmerkurferðar-
innar var heimsóknin til DIFTA, þar sem
er tilraunatankur til að reyna hegðan
veiðarfæra í sjó. Á móti hópnum tók Ul-
rik Jes Hansen og kynnti hann sögu
Nordsö Center og DIFTA (Danish
Instetude for Fisheries Technology and
Aqaculture) Hann lýsti fyrir okkur upp-
byggingu tanksins, sem er með 1200
tonnum af sjó. Því næst var farið í tank-
inn og Butterfly troll skoðað. Gerðu neta-
gerðarnemarnir hinar ýmsu breytingar á
gröndurum og toghraða. Til stóð að
skoða nokkur troll í boði Hampiðjunnar
sem þeir Hampiðjumenn höfðu sent með
hópnum en, vegna misskilnings, voru
engir grandarar með í pakkanum og eftir
töluverðan vandræðagang með þessi
grandaralausu troll var ákveðið að halda
fund í staðinn. Þar var farið lauslega yfir
hönnun trolla og þótti nemendahópnum
það mjög áhugavert efni sem ástæða væri
til að koma inn í námið hér heima á Is-
landi.
Tveimur dögum var eytt í heimsóknina
hjá DIFTA og fékk hópurinn á seinni
daginum fyrirlestur um hlerasmíði. Farið
var yfir mótsstöðu á trollum í sjó og kjör-
hæfni. Eftir fyrirlestrana var síðan farið í
tankinn og skoðuð nokkur módel sem
nemendur höfðu óskað eftir að fá að sjá og
einnig var m.a. athugað hvað gerist þeg-
ar grandarar slitna.
Fiður í heimsókninni til DIFTA var að
hlýða á fyrirlestur hjá Finn frá Perfect-
hlerum í Danmörku. Eftir þann lestur var
hópurinn á einu máli um að Islendingar
séu greinilega langt á undan í hönnun og
prófunum á hlerum! Þessu næst var farið
aftur í tankinn og nú voru trollin frá
Hampiðjunni klár í smá þvott í tanknum
en með því lauk heimsókninni til
DIFTA.
NETAGERÐARNÁM
Cosmos trawl í Hirtshals
heimsótt
I sjávarbænum Hirtshals var erindið að
skoða fyrirtækið Cosmos trawl. Cosmos
trawl er mjög stórt og snyrtilegt neta-
verkstæði á tveimur hæðum, þar sem á
neðri hæðinni er framleiðsla á rækjutroll-
um og ýmsu smálegu. Þarna var t.d. ver-
ið að útbúa poka fyrir sandsíli, en einnig
var á gólfinu 3000 möskva rækjutroll
með öllu tilheyrandi, toppur og ein spóla
af 6000 möskva rækjutrolli. Á efri hæð-
inni er aðstaðan ekki síðri, hátt til lofts
og aðallega unnið við uppsetningu og
viðgerðir á nótum. Þar var t.d. í einu
horninu 100 faðma djúp síldarnót.
Farið til Skagen
Eftir hádegi þennan dag var síðan haldið
til Skagen í heimsókn til verkstæðis
Cosmos-trawl en það er tiltölulega nýlegt
verkstæði, þar sem vinna 15 netagerðar-
menn og aðallega í viðgerðum. Eftir þetta
innlit var kíkt í heimsókn hjá Brotherne
Sörensen, sem er netaverkstæði sem er
75% í eigu Setstad í Noregi og 25% í
eigu Nordtrawl, en hjá þeim vinna 15
manns og eru þeir í öllu nema hringnót-
um. Sá sem tók á móti hópnum hafði á
orði að það vantaði menntun í netagerð í
Danmörku, eins og boðið væri uppá á Is-
landi.
Frá Brotherne Sörensen lá leiðin tíl
HC-trawl sem er lítið verkstæði með 6
kalla í vinnu. Það sem vakti mesta at-
hygli þar var rækjuskilja sem tók einnig
stærri fisk en hleypti út smáfiski.