Ægir - 01.10.2000, Síða 8
■ FRÉTTIR
Stíf sókn 1
kolmunnann
Öll stærri skipin í nóta- og togveiðiflot-
anum stunda nú kolmunnaveiðar af
kappi. Búast má við að útgerðir haldi
skipunum á kolmunnaveiðum á meðan
ekkert bóLar á loðnunni en nú þegar
hefur verið landað um 220 þúsund
tonnum á kolmunna hjá islenskum
fi s ki m j ö ls ve r ks m i ðj u m.
Meðal þeirra skipa sem stunda
kolmunnaveiðarnar er hinn nýi Vilhelm
Þorsteinsson EA og samkvæmt upplýs-
ingum Ægis hefur skipið reynst hið
besta. AfLa ViLheLms hefur að mestu ver-
ið Landað i Færeyjum.
Enn ein
sameiningin
Guðmundur RunóLfsson hf. á Grundar-
firði og ÚtgerðarféLagið Njöróur ehf.
Sandgerði hafa ákveðið að sameinast.
Þetta var samþykkt á hLuthafafundum
sem haLdnir voru fyrir skömmu og tiL-
kynnt Verðbréfaþingi ísLands. Hió nýja
féLag mun bera nafnið Guðmundur Run-
óLfsson hf.
Ingunn sjósett
Tog- og nótaskipið Ingunn AK frá Akra-
nesi hefur verið lengt um 7,20 metra
hjá Asmar-skipasmíðastöðinni i ChiLe. í
heiLd er skipið nú tæpir 73 metrar að
Lengd. ÆtLunin er að afhenda skipið um
miðjan nóvembermánuð en eftir breyt-
ingarnar ber það um 2000 tonn.
Árni Mathiesen, sjávarútvegsráðherra, ræsir Interseafood.com.
Viðskiptasíða
með fisk og sjávarfang
- Interseafood.com hleypt af stokkunum
Opnuð liefur verið á Netinu fyrsta ís-
lenska vefsíðan sem helgar sig viðskipt-
um milli fyrirtækja með fisk og sjávar-
fang. Einnig er um að ræða alhliða frétta-
upplýsinga- og þjónustuvef
um allt er lítur að greininni.
Slóð þessarar síðu er Inter-
seafood.com.
Arni M. Mathiesen, sjávar-
útvegsráðherra, opnaði síðuna
með formlegum hætti og lét
þess getið við það tækifæri að
síðan væri gott dæmi um það
hvernig sjávarútvegurinn
gæti notfært sér nýja upplýsingakerfið,
þannig að greinin gæti eflst enn frekar.
InterSeafood.com er alþjóðlegur mark-
aðs-, frétta- og þjónustuvefur fyrir sjávar-
útveginn þar sem áhersla er lögð á við-
skipti með sjávarafurðir, fréttir og þjón-
ustuupplýsingar. Markaðskerfi vefsins
verður til að byrja með á ensku en þjón-
ustuhluti hans verður á ensku, íslensku,
færeysku og norsku þar sem markmiðið
er að þjóna norður-evrópska markaðs-
svæðinu sérstaklega vel frá byrjun og
auka síðan þjónustuna við
önnur markaðssvæði. Inter-
Seafood.com vefurinn er alfar-
ið byggður á þekkingu Islend-
inga á verslun með sjávaraf-
urðir og þörfum markaðarins.
Ritstjóri fréttaþjónustu
Interseafood.com er gamal-
reyndur í faginu, Eiríkur St.
Eiríksson, sem árum saman
hefur unnið við vikublaðið Fiskifréttir.
Fréttirnar eru skrifaðar á ensku, íslensku,
færeysku og norsku og fréttaviðmótið
ræðst af því hvaðan notendur opna vef-
inn. íslenskir notendur fá þannig upp ís-
lenska fréttaforsíðu þegar þeir fara inn á
vefinn en norsk fréttaforsíða blasir við
notendum í Noregi.
lnterSeafood«com
Við auðveldum þér
hlutina við pökkun
Einnota vörur:
latexhanskar,
vinýlhanskar,
ermahlífar,
svuntur,
hárnet,
skóhlífar,
gestasloppar.
Viðskipti hjá DAMBERG
snúast fyrst og fremst
um þig og þínar þarfir.
Tunnulyftarar
rar
SYROM
pökkunarlímbönd.
Gæði alla leið.
EX-CELL
handstrekkifilma
.
EX-CELL
vélstrekkifilma
Bretta-
vafningsvélar.
Brettahettur, brettatoppar
DANBERG EHF.
Skúlagötu 61 • 123 Reykjavík • Sími 562 6470 • Fax 562 6471