Ægir

Árgangur

Ægir - 01.10.2000, Blaðsíða 28

Ægir - 01.10.2000, Blaðsíða 28
SJÓMANNAALMANAK Sjómannalmanak Fiskifélags íslands í vinnslu: Skipaskráin skiptir um ham „Svona útgáfa er sífelld þróunarvinna," segir Valþór Hlöðversson framkvæmdastjóri Athygli sem hefur umsjón með gerð Sjómannaalmanaksins 2001 Undirbúningur útgáfu Sjómannaalmanaks Fiskifélags ís- lands og íslenskri skipa- og hafnaskrá 2001 stendur nú sem hæst og er áætlað að bækurnar komi út fyrir miðj- an desembermánuð. í bókunum í ár er bryddað upp á ýmiss konar nýbreytni sem mun koma lesendum þægi- lega á óvart. „Það sem e.t.v. mun helst vekja athygli er að Sjómannaalmanakið fyrir næsta ár og íylgibók þess, Islensk skipa- og hafna- skrá, verða í stærra broti en áður og er þar með rofm áralöng hefð. Brot bókanna stækkar um 20% en með því verður texti læsilegri og myndir og auglýsingar stærri. Þá er efni almanaksins aukið og endurbætt og er það í beinu framhaldi af nýrri uppröðun efnis sem ráðist var í í síð- ustu útgáfu," sagði Valþór Hlöðversson, framkvæmdastjóri Athygli sem hefur umsjón með útgáfu almanaksins fyrir hönd Fiskifélagsútgáfunnar. Glaðbeittir starfsmenn Athygli og Markfells sem bera hitann og þungann af útgáfu Sjómanna- almanaksins 2001 og íslenskri skipa- og hafna- skrá. Frá vinstri Valþór Hlöðversson frá Athygli, Birna Siguróardóttir og Ingibjörg Ágústsdóttir frá Markfelli ehf. og Elin Sigurðardóttir og Embla Oddsdóttir frá Athygli. ■ 28 Mest lesna almanaktð Söfnun auglýsinga í Sjómannalmanakið er nú í fullum gangi og að sögn Ingi- bjargar Ágústsdóttur, auglýsingastjóra, eru viðtökur auglýsenda afar góðar. Hún sagði að auglýsingamarkaðurinn væri stöðugt að breytast: gömul og gróin fyr- irtæki hætti rekstri með sameiningu við önnur en ný fyrirtæki komi einnig fram á sjónarsviðið. „Þá höfum við boðið ýmsum aðilum auglýsingar sem ekki hafa talist til okkar markhóps hingað til og er óhætt að segja að viðtökur þeirra hafa verið frá- bærar. Það segir okkur einfaldlega að auglýsendur skynja að Sjómannalmanak Fiskifélags Islands er það rit sem sjómenn nota fyrst og fremst enda eru þeir vanir því eftir áratuga útgáfu." Aðspurður sagði Valþór Hlöðversson að útgáfa almanaksins væri skemmtilegt verk og metnaðarfullt. „Við gerum okkur grein fyrir því að kröfur þeirra sem nota bækur af þessu tagi aukast ár frá ári. Hvers konar upplýsingamiðlun er ágeng- ari en áður var og slagurinn um athygli sjómanna og annarra sem starfa í sjávar- útveginum harðnar. Samkeppnin á þessu sviði er því af hinu góða og henni höfum við mætt með aukinni og endurbættri bók ár frá ári. Þetta er því þróunarstarf sem aldrei tekur enda." Áreiðanleikinn í fyrirrúmi Eins og kunnugt er hvílir sú lagaskylda á útgerðum skipa að hafa sjómannaalman- ak um borð og er það vegna mikilvægis þeirra upplýsinga sem þar er að finna. „Við höfum stundum verið að gantast með það hér á ritstjórninni að það sé eins gott að hafa flóðatöflur og vitaskrár í lagi því annars sigli menn einfaldlega í strand og krefji svo Fiskifélagsútgáfuna um bæt- ur! Vissulega kunna sjómenn betur sitt fag en svo að þeir treysti alfarið á slíkar upplýsingar í okkar riti en það breytir ekki því að þær þurfa að vera réttar. Við gerum okkur því afar ríka grein fyrir ábyrgð okkar á því að upplýsingar komist óbrenglaðar til skila og því reynum við að vera í sem bestu sambandi við þá aðila sem gefa slíkt út. Einnig eru prófarkir af almanakinu marglesnar yfir til að tryggja að prentvillupúkinn komist ekki á stjá. Við heyrum það líka á þeim sem nota Sjó- mannaalmanak Fiskifélagsins að þeir treysta því sem þar stendur," sagði Val- þór ennfremur. Endurbætt skipaskrá Það sem einnig telst til tíðinda hvað varðar Sjómannaalmanakið fyrir næsta ár er að skipaskráin verður allt öðruvísi brotin um en áður og upplýsingar enn betri en fyrr. Jafnframt verða myndir af skipum fleiri en áður og mun stærri. Val- þór sagði kannanir benda til að þessi skrá væri afar mikið notuð enda vildu sjó- menn fylgjast með annarra fleyum. Þá verða nokkrar breytingar á hafnarkaflan- um sem munu auka mjög upplýsinga- gildi hans, sjómönnum til hagsbóta. Utgáfa bóka á borð við Sjómannaalm- anakið og Islenska skipa- og hafnaskrá er býsna viðamikið verk. Fjöldi starfsmanna kemur að því seinni hluta hvers árs: Starfsfólk Fiskifélags Islands, starfsmenn Athygli sem sjá um efnisvinnslu og um- brot bókanna, starfsfólk Markfells sem safnar auglýsingunum og loks starfsmenn Odda hf. sem hafa prentað bækurnar und- anfarin ár. Loks má ekki gleyma fjölda starfsmanna stofnana og félagasamtaka sem lesa yfir einstaka kafla og eru útgef- endum til ráðuneytis um efni bókanna.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.