Ægir

Árgangur

Ægir - 01.10.2000, Blaðsíða 33

Ægir - 01.10.2000, Blaðsíða 33
FJARSKIPTI & SJÁVARÚTVEGUR Gervihnattasjónvarp gerir sjómenn ánægðarí í starfi - segir Reynir Guðjónsson hjá ísmar „Mér segir svo hugur að þess verði ekki langt að bíða að þægindi á borð við gervihnattasjónvarp verði svo mikil- vægur búnaður í íslenskum sjávarútvegi að hann kunni að ráða úrslitum um hvort menn ráða sig um borð eða ekki." „Gervihnattasjónvarp hefur rutt sér til rúms á skipum vítt og breitt um heiminn og sú þróun á sér líka stað hér á landi,“ segir Reynir Guðjónsson, framkvæmda- stjóri hjá sölu- og þjónustufyrirtækinu Ismar í Reykjavík. ísmar selur búnað til síma- og tölvu- fjarskipta um gervihnetti, sem og búnað til að móttaka sjónvarpssendingar um gervihnött. Reynir segir vissulega mis- jafnt milli útgerða hversu mikill áhugi sé á framþróuninni en ráða megi af hönnun nýrra skipa að gert sé ráð fyrir nýjustu tölvu og fjarskiptatækni. Dæmi um það nefnir Reynir t.d. nótaskipið Huginn, sem senn er væntanlegt frá Chile en um borð eru tölvulagnir innan skipsins og geta skipverjar þannig nettengt sfnar far- tölvur á innra net skipsins. Slíkt auðveld- ar þeim t.d. fjarskipti við land með tölvu- pósti. „Smám saman er að verða auðveldara að fást við tengingu skipa við Veraldarvef- inn og kemur þar tvennt til. Annars veg- ar fer gjaldtakan lækkandi hjá gervi- hnattafyrirtækjunum og hins vegar er búnaðurinn að taka miklum framförum hvað varðar flutningsgetu," segir Reynir og nefnir að tölvusamskiptin geti skilað útgerðum mikilli hagræðingu, sölufyrir- tækjum á fiski hraðari upplýsingum og fyrir skipverjana um borð teljist nettengdur tölvubúnaður til þæginda sem líkist lífinu í landi og geti þar með vegið að hluta upp á móti fjarverunni frá heimilum. „Sjónvarpstengingarnar sem við erum að bjóða uppá eru líka hluti af auknum þægindum sjómanna og liður í því að gera þá ánægðari í starfi. Mörg útgerðar- fyrirtæki hér á landi hafa þegar fengið gervihnattasjónvarp um borð og t.d. hef- ur Samherji hf. nýverið pantað gervi- hnattadiska á öll sín fiskiskip," segir Reynir. Aðspurður hvaða efni það er sem sjómenn eru frekast að sækjast eftir í gervihnattasjónvarpinu segir Reynir það vafalítið íþróttaefnið. „Menn geta valið á milli fjöldamargra erlendra sjónvarps- stöðva og fengið fjöldan allan af beinum sýningum frá íþróttakappleikjum. Hins vegar er því miður ekki ennþá komið ís- lenskt sjónvarpsefni í gervihnött en við höfum þrýst á Ríkisútvarpið að senda sína dagskrá upp í hnött. Það fer að verða mikið hagsmunamál fyrir þessi fjölmörgu skip sem komin eru með gervihnatta- diska og eru að sækja langt út fyrir svæði endurvarpsstöðva á landi,“ segir Reynir Guðjónsson, framkvæmdastjóri Ismar. Ljósmynd: Hreinn Magnusson Reynir Guðjónsson, framkvæmdastjóri ísmar.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.