Ægir

Árgangur

Ægir - 01.10.2000, Blaðsíða 46

Ægir - 01.10.2000, Blaðsíða 46
Helstu verktakar og birgjar sem komu að smíði Þorláks ÍS 15 VéLasaLan Nauta Shipyard Skipasmíði VéLassaLan AðaLvéL, rafstöðvar ofL. Skipsýn Hönnun og ráðgjöf MarafL ehf. NorSap stóLL Radíómiðun Tæki í brú Dímon LinubeitningavéL frá BFG ÓLsen SLeppigáLgi Icedan Björgunarbúnaður Örgjafinn Rafbúnaður Rafskaut Rafbúnaóur Vaki-DNG Linetech Línukerfi ELdverk SLökkvikerfi MáLning hf. HempeLs skipamáLning SigLingastofnun FLokkun og eftirlit SKIPASTÓLLINN ingastofnunar Islands. Skipið er með tvö heil þilför stafna á milli, perustefni, þver- an skut og brú á reisn á afturskipi. Bil á milli banda á bol er 500 mm. Skipið er sérstaklega útbúið til veiða með línu en milliþilfar styrkt fyrir togspil og skut- gálga. Undir aðalþilfari er skipinu skipt með fimrn vatnsþéttum þverskipsþilum í eft- irtalin rúm; fremst er stafnhylki fyrir sjó, þá hátankur fyrir eldsneytisolíu, íbúðir framskips með ferskvatnstönkum í botni, fiskilest með stálklæddum botni, véla- rúm með tveimur hátönkum úti í síðum. Fremst á aðalþilfari er kaðlageymsla, þá vistarverur sem ná aftur eftir bakborðs- síðu skipsins, en vinnsluþilfarið er stjórn- borðsmegin. Aftast á aðalþilfari bak- borðsmegin er beituklefi og verkstæði. Fremst á efra þilfari eru akkerisspil, þá ljósamastur sem jafnframt er neyðarupp- gangur upp úr íbúðum, þilfarskrani og lestarlúga. Brúin er á reisn með andvelti- geymi í holrýminu ásamt loftræstibúnaði ofl. Sambyggt brúnni eru klefi skipstjóra og skorsteinshús. Á þaki brúar eru vinnu- ljós og mastur fyrir ratsjá, siglingaljós og leitarkastara. íbúðir I skipinu eru íbúðir og klefar fyrir 13 manna áhöfn í eins, tveggja og þriggja manna klefum. Undir aðalþilfari eru fremst í skipinu tveir tveggja manna klefar. Fremst á aðalþilfari eru tveir þriggja manna klefar og tveggja manna klefi. Fremst bakborðsmegin í skipinu eru salerni með sturtu, þá eldhús, borð- salur og setustofa. Þar aftan við eru sal- erni og vélareisn auk stakkageymslu. Ibúðir eru einangraðar með steinull, klæddar þilplötum og hitaðar upp með kælivatni véla og rafkatli þegar vélar eru ekki í gangi. I áhöfn verða 7 menn. Brúin Brúin er í stjórnpallsstíl með hefðbundnu fyrirkomulagi á stjórntækjum. Aftan við brúnna er klefi skipstjóra og stigahús niður í skipið ásamt sambyggðu skor- steinshúsi. Skipstjórastóllinn er í braut frá NorSap. Bakborðsmegin í brúnni er stigi niður í matsal á milliþilfari. Á aftur- þili brúar er útgangur aftur á þilfar. Milliþilfar Vinnsluþilfarið er mjög rúmgott miðað við stærð bátsins og er um 20 metra langt. Fremst á vinnsluþilfari er vökva- knúin netalúga stjórnborðsmegin og dráttarspil fyrir línu. Beitningavélin er frá BFG (Best Fishing Gear) í Noregi. Hún er af nýrri gerð sem er til muna ein- faldari en þær vélar sem hafa verið notað- ar hingað til. Dráttarspilið er 3,5 tonn frá Rapp Hydema, uppstokkarinn, beitn- ingavélin og rekkarnir eru frá BFG og Linetech línukerfið er frá Vaka-DNG. Línan sem notuð er um borð í Þorláki er 7 mm fiskilína með segulnöglum frá Fiskevegen í Noregi. Hún er með 24.000 króka og hentar 7 manna áhöfn. Beitu- klefinn er einangraður, klæddur krossviði og húðaður með trefjaplastefni. Fyrir beituklefa er sérstakt frystikerfi sam- byggt klefanum. Varmaorka eimsvala beitufrystikerfisins er notuð til að hita upp milliþilfar. Lestin, vindu- og losunarbúnaður Lest skipsins er rúmgóð kælilest sem rúmar 86 stk. 660 1 kör. Hún er klædd stáli á gólfi upp á miðjar síður en krossviði þar fyrir ofan og í lofti. Stálið var sandblásið og málað. Lestin er ein- angruð með steinull. Fyrir lest er kæli- kerfi með Guntner rafdrifnum kæliblás- ara. Löndunarkraninn er Triplex KN 16 Slippfélagiö Málningarverksmiója Dugguvogi 4 1104 Reykjavík Sími: 588 8000 / Fax: 568 9255 SSSB ÞORLÁKUR ÍS-15 Óskum útgerð og áhöfn til hamingju með nýja skipið. Skipið er málað með HEMPELS skipamálningu frá Slippfélaginu Málningarverksmiðju.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.