Ægir - 01.10.2000, Blaðsíða 25
UMRÆÐAN
grundvöllur að sáttum um nýt-
ingu allra auðlinda í þjóðareign.
En það virðist hins vegar ekki
líklegt að þessi leið verði valin
vegna þess að margar vísbending-
ar eru um að sáttagerðin sé ein-
ungis milli L.I.U. forystunnar og
stjórnvalda. Enda heitir þetta
ekki lengur þjóðarsátt í munni
ráðherranna. Það heitir meiri sátt
og svo bæta þeir við að vitanlega
verði aldrei sátt um þetta mál, til
þess séu of miklir hagsmunir í
húfi.
Sáttagerð L.Í.Ú. og Davíðs
Oddssonar birtist í veiðigjalds-
leiðinni. Þeirri sáttagerð hefur
greinilega verið troðið inn í álit
Auðlindanefndar af fulltrúum
Sjálfstæðisflokksins og í nefnd-
inni lýsa tveir þeirra yfir sérstök-
um stuðningi við hana. Fingraför-
in leyna sér ekki og eftirleikurinn
er hafinn. Hann hófst um leið og
Auðlindanefnd skilaði af sér. Þá
beið L.I.Ú. í startholunum hélt
blaðamannafund og lýsti yfir
stuðningi við veiðigjaldsleiðina ef
hún yrði farin á þeirra forsendum.
Sjávarútvegsráðherrann lét ekki á
sér standa, lýsti veiðigjaldsleið-
inni sem bestu afmælisgjöf sem
hann hefði fengið og boðaði frum-
varp um málið strax um næstu
áramót. Formaður sjávarútvegs-
nefndar Alþingis taldi veiði-
gjaldsleiðina mun betri en aðaltil-
lögu nefndarinnar hvað varðar all-
ar auðiindir og margir sjálfstæðis-
menn hafa lýst yfir stuðningi við
þessa leið. Framsóknarmenn hafa
hins vegar talað varlega og hvatt
til þess að málið yrði skoðað vand-
lega áður en kveðið verði uppúr
um hvaða leið verður valin. Það er
nú mjög mikilvægt að ekki verði
hrapað að niðurstöðu um hvaða
leið verður valin til að leita sátta
um nýtingu auðlindarinnar. Verði
veiðigjaldsleiðin farin á forsend-
um L.Í.Ú. og Sjálfstæðisflokksins
verður núverandi kvótahöfum
tryggð einokun á íslandsmiðum.
Um það verður aldrei sátt. Það
virðist einnig eiga að gefa stórút-
gerðunum sérstakt veiðileyfi á
smærri útgerðirnar með því að
lyfta þakinu af kvótaeigninni.
Nýlega hefur komið fram að sjáv-
arútvegsráðherrann telur hættu-
legt að hleypa erlendum aðilum
inn í útgerð á íslandi. Það þarf
enginn að vera undrandi á því að
„Það er þess vegna ekki vafi á að það ber
aó líta á fyrningarLeiðina og sambærilegar
tillögur um meðferð aLLra auðLinda sem aðaL-
nióurstöðu nefndarinnar."
þeir sem aðhyllast þá stefnu að
þeir sem nú stunda stórútgerð hér
eigi að eiga auðlindina um aldur
og eilífð séu dálítið smeykir við að
hleypa erlendum aðilum inn í út-
gerð á íslandi vegna þess að með
þessu fyrirkomulagi yrði galopið
fyrir erlenda auðhringa að kaupa
upp íslandsmið, en slíkt væri
óhugsandi ef fyrningarleiðin yrði
farin.
Stefna Sjálfstæðisflokksins í
þessu máli er háskaleg og um
hana verður aldrei sátt. Nú reynir
á hvort aðrir flokkar ætla að láta
Sjálfstæðisflokkinn teyma sig þá
einokunarleið sem Sjávarútvegs-
ráðherrann boðar.
Verði það niðurstaðan verður
álitsgerð auðlindanefndar ekki
grundvöllur að sátt með þjóðinni.
Það virðist einnig
eiga að gefa stórút-
gerðunum sérstakt
veiðileyfi á smærri
útgerðirnar með þvi
að lyfta þakinu af
kvótaeigninni.
25