Ægir

Árgangur

Ægir - 01.10.2000, Blaðsíða 19

Ægir - 01.10.2000, Blaðsíða 19
HEIMSÓKN Á VOPNAFJÖRÐ sem mesta hagræðingu í hráefn- isinnkaupin. Umhverfið í vinnslu á Rússafiski er með skásta móti um þessar mundir en mér er eng- in launung á því að fyrirtækið á mikið undir því að hægt sé að frysta uppsjávarfisk. Við fjárfest- um töluvert a sínum tíma í bún- aði og húsnæði fyrir uppsjávar- frystinguna og erum enn að borga þá fjárfestingu niður.“ Vinnudegi lokið kl. 13 Fyrir rösku ári var sdgið athyglis- vert skref í frystihúsi Tanga hf. Þegar vinnutími var endurskipu- lagður. Breytingin gékk út á að fá eina samfellu í vinnsluna, þ.e. að þjappa vinnslunni sem mest sam- an á eina vakt. Friðrik segir að líkt og hjá mörgum öðrum fisk- vinnslufyrirtækjum hafi verið vel mannað fyrir hádegi en síður eftir hádegi og til að ná fram hagræð- ingu í starfsemina og betri nýt- ingu á mannskap hafi verið ákveð- ið að stytta vinslutímann f húsinu niður í 6 klukkustundir, þ.e. vinnutíma frá 7 á morgnana tii klukkan 13 á daginn. „Með þessu fæst ein vinnulota og húsið er vel mannað allan tím- ann. Margar af konunum sem vinna í húsinu eru húsmæður sem ekki vilja vinna 8 tímana og þær eru mjög ánægðar með það að hafa lokið fullum vinnudegi klukkan eitt á daginn. Eg tel að fyrirkomulagið hjá okkur sé mjög fjölskylduvænt og launin eru litlu lakari , einfaldlega vegna þess að afköstin verða meiri.“ - Hvernig gekk ykkur að koma þessu vinnuskipulagi á? „Svona breytingar ganga aldrei hljóðlaust í gegn en starfsfólkið sá fljótt að kostirnir voru miklir við það að þjappa vinnudeginum saman með þessum hætti. Eg tel mig geta fullyrt að það vilja fáir, ef nokkrir, skipta til fyrra vinnu- fyrirkomulags. Við höfum gert skoðanakönnun meðal starfsfólks- ins og vitum af niðurstöðum hennar að fólki lxkar þetta vel og fyrir fyrirtækið er hagkvæmnin töluverð því afköstin í vinnslunni eru meiri. Við hjá Tanga erum þeir einu að ég held í fiskvinnsl- unni sem keyrum á svona vinnu- fyrirkomulagi en ég tel að fisk- vinnslan almennt eigi að reyna að Loðna frá Tanga hf. í reykingaklefa í Rússlandi. Hér er hver fiskur þræddur upp á pijón fyrir reykingu. stíga skref í þá átt að stytta vinnu- tímann og gera vinnuumhverfið fjölskylduvænna. Um það snýst framtíðin," segir Friðrik Mar Guðmundsson, framkvæmda- stjóri Tanga hf. Askja með reyktri loðnu. KíLó af reyktri Loðnu kostar um 120 krónur i RússLandi og með þá viðmiðun í huga að mánaðar- Laun verkamanns eru þar í Landi um 7.000 krónur þá sést veL að reykt loðna er ekki mat- ur fátæka fóLksins i RússLandi, Likt og margir haLda. r Sjálfvirk línukerfi og færavindur fyrir allar stæröir báta Úrvals færakrókar á frábæru veröi Lónsbakka ■ 603 Akureyri Sími 461 1122 • Fax461 1125 dng@dng.is • www.dng.is Ármúla 44 -108 Reykjavik Simi 568 0855 ■ Fax 568 6930 vaki@vaki.is ■ www.vaki.is 19

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.