Ægir

Árgangur

Ægir - 01.10.2000, Blaðsíða 14

Ægir - 01.10.2000, Blaðsíða 14
FRÉTTIR Við hina nýju bolfiskvinnslulínu Síldarvinnslunnar i Neskaupstað eru stæði fyrir Qórtán starfsmenn og á tölvuskjá geta þeir fengið nákvæmar upplýsingar um störf sin, svo sem gæði, afköst og nýtingu. Hagræðing og afkastaaukning - nýtt bolfiskvinnsluhús hjá Sildarvinnslunni í notkun „Ég er ákaflega ánægður með hvernig til hefur tekist með nýja aðstöðu okkar fyr- ir bolfiskvinnsluna," segir Asbjörn Helgi Árnason, framkvæmdastjóri vinnslusviðs Síldarvinnslunnar hf. í Neskaupstað. Um mánaðamótin ágúst-september var ný aðstaða félagsins fyrir boifiskvinnslu tekin í notkun, en hún er í fiskiðjuveri því sem byggt var fyrir nokkrum árum en það hefur hingað til aðeins verið nýtt vegna vinnslu á uppsjávarfiski. Þessi nýja aðstaða fyrir bolfiskvinnsluna kem- ur í stað gamia frystihússins við Strand- götu í Neskaupstað sem reist var af Sam- vinnufélagi útgerðarmanna árið 1949. „Með hinu nýja frystihúsi náum við fram mikilli hagræðingu í okkar reksti og af- kastaaukningu við framleiðsluna." Hin nýja bolfiskvinnsla í fiskiðjuver- inu er búin þeim allra fullkomnasta bún- aði sem völ er á. Vinnslulínan í húsinu er hönnuð og framleidd af Marel hf. og Skaganum hf. I móttöku er hráefnis- flokkari sem flokkar hráefni eftir stærð og þar eru einnig hausari og þrjár flök- unarvélar. I vinnslusal er snyrtilína með stæðum fyrir fjórtán starfsmenn og á eig- in tölvuskjá fær hver og einn starfsmað- ur nákvæmar upplýsingar um störf sín, það er um gæði, afköst og nýtingu. I Óskum Síldarvinnslunni hf. og starfsfólki til hamingju með nýja fiskvinnsluhúsið. Síldarvinnslan hf. valdi vinnslubúnað frá Skaganum hf. sem samanstendur m.a. af: Nýrri tegund af lausfrysti • Vatnsdrifnum karahvolfurum til innmötunar • fmmötun á flokkara eftir lausfrystir • Hraösnyrtilinu fyrir karfa • Pökkunarlinu • Umbuöarlyftu • Tilheyrandi færibönd • Flæöilínu og sporðasnyrtilinu í samvinnu með Marel hf. SKAGINN HF. Bakkatúni 26 • 300 Akranesi • Sími 430 2000 • Fax: 430 2001 Netfang: skaginn@skaginn.is • Veffang: www.skaginn.is cupnn

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.