Ægir

Árgangur

Ægir - 01.10.2000, Blaðsíða 10

Ægir - 01.10.2000, Blaðsíða 10
FRÉTTIR Smábátasjómenn um skýrslu Auðlindanefndar: Gott innlegg í sjávarútvegsumræðuna - hafna titlögum um ráðstöfun á veiðigjaldi Landssamband smábátaeigenda sendi í kjölfar skýrslu Auðlindanefndar frá sér ályktun þar sem skýrslunni er fagnað og hún talin vera gott innlegg í sjávarút- vegsmálaumræðuna, auk þess sem hún staðfesti mikilvægi sjávarútvegsins í lífs- kjörum þjóðarinnar. Þó er mótmælt af- skiptum nefndarinnar af lögum um stjórn fiskveiða og lagst gegn tillögum um ráðstöfun á veiðigjaldi. „Landssamband smábátaeigenda telur það ljóð á störfum Auðlindanefndar að ekki sé skýrt skilið á milli sjávarútvegs- fyrirtækja sem eingöngu stunda fiskveið- ar. Tekin eru dæmi í skýrslunni um hagnað sjávarútvegsfyrirtækja á Verð- bréfaþingi og lögð til grundvallar til- komu auðlindagjalds, þegar ljóst er að fyrirtæki sem stunda fiskveiðar skuli greiða gjaldið, fyrirtæki sem að mati Þjóðhagsstofnunar töðuðu 3,2 milljörð- um, árin 1997 og 1998. I þingsályktunartillögu sem Auðlinda- nefnd var gert að starfa eftir er tekið fram að gjaldtaka skuli vera hófleg. Þegar horft er til útreikninga Þjóðhagsstofnunar á af- komu fiskveiða er lítið borð fyrir báru með það auðlindagjald sem útgerðin greiðir í dag. Verði það hins vegar niður- staða Alþingis að hækka opinber gjöld á þeim sem fiskveiðar stunda leggst L.S. gegn því að farin skuli svokölluð fyrning- arleið. L.S. lýsir sig reiðubúið til við- ræðna um útfærslu. L.S. leggst gegn til- lögum Auðlindanefndar um ráðstöðun á veiðigjaldi," segir í ályktuninni. L.S. bendir einnig á að á sama tíma og niðurstaða Auðlindanefndar liggi fyrir, þar sem m.a. sé staðfest að ekki sé svig- rúm fyrir aukna gjaldtöku á sjávarútvegi, séu tugir milljarða að flæða úr landi án þess að skattur hafi verið greiddur. „Hluti þessara fjármuna hefur komið frá útgerðinni, en þrátt fyrir misseris gamlar viðvaranir Ríkisskattstjóra hafa stjórn- völd ekki séð ástæðu til breytinga. Lands- samband smábátaeigenda telur að tekjur sem þjóðin hafi þarna orðið af svari til margra ára greiðslu auðlindagjalds og beri með sér skilaboð um að betra sé að huga vel að þeim sköttum sem í gildi eru áður en nýir komi til framkvæmda." ER^ Netagerðin HÖFÐI ehf Suðurgarði • Húsavík Sími 464 1999 Fax 464 2099 Farsímar 854 2399 • 894 2399 Netfang netagerd@nett.is rtrt! l! III! Ilil ^ LinWíf1

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.