Ægir

Årgang

Ægir - 01.10.2000, Side 13

Ægir - 01.10.2000, Side 13
FISKVINNSLA Vinnsluskipin sækja á „Hlutdeild vinnsluskipa hefur verið að meðaltali 20-25% á síðustu árum,“ sagði Arnar. „Á síðasta ári hækkaði hlutdeild þeirra verulega í botnfiskaflanum og fór í tæplega 30%. Ymsar skýringar eru á þessari aukningu. Vinnsluskipum hefur farið fjölgandi og mikill samdráttur í veiðum í Barentshafi hefur orðið til þess að þeim hefur verið beitt með auknum krafti á veiðar innan lögsögunnar. Fyrstu sjö mánuði þessa árs er hlutfall vinnslu- skipa áætlað um 27%, að meðtöldum karfaveiðum á Reykjaneshrygg. Hlutfall gámafisks og siglinga fiski- skipa á eriendan markað náðu hámarki um miðjan síðasta áratug. Gámafiskur og siglingar komust hæst í 18% af botn- fiskaflanum. Síðan tók magnið og hlut- fallið að lækka og fór niður í 7% fyrir tveimur árum. og nú er hlutfallið áætlað 6% af heildarbotnfisk-aflanum fyrstu sjö mánuði þessa árs. Við höfum tekið sam- an upplýsingar um útflutning á ísuðum fiski fyrstu átta mánuði þessa árs og bor- ið saman við sama tímabil á undanförn- um árum. Nokkur aukning er í þorski miðað við sama tíma í fyrra, svipað magn hefur verið flutt út af ýsu, en mjög dreg- ið úr útflutningi á ufsa og karfa," sagði Arnar í ávarpi sínu. Áhrif þorskafla- samdráttar sýnileg Formaður SF vék í máli sínu að rekstrar- vanda botnfiskvinnslunnar og sagði að þegar það hafi gerst fyrir nokkrum árum að nær helmings samdráttur hafi orðið í þorskafla þá hafi verið eðlilegt að eitt- hvað léti undan í þjóðfélaginu. „Þessi samdráttur í þorskaflanum hef- ur kostað miklar fórnir fyrir fólk og fyr- irtæki,“ sagði Arnar. „Leiða má rök að því að hann hafi orsakað byggðaröskun í sjávarplássum sem byggðu nær allt sitt á þorskinum. Mönnum hættir stundum til að gleyma þeirri staðreynd að þorskurinn einn skapar þjóðarbúinu jafn miklar gjaldeyristekjur og samanlagður útflutn- ingur allrar stóriðju og annarra iðnaðar- vara frá Islandi. Þorskurinn heldur mik- ilvægi sínu fyrir þjóðarbúið þrátt fyrir að útflutningur á áli og kísiljárni hafi auk- ist á allra síðustu árum. Nú er þorskafl- inn að aukast á ný og framhaldið gefur tilefni til nokkurrar bjartsýni," sagði Arnar Sigurmundsson, formaður Sam- taka fiskvinnslustöðva. Ráðstöfun botnfiskaflans 1990 - 2000 100% 90% 80% 70% 60% 50% 40% 30°/o 20% 10% 0% Erlendis Innanlands 65% 67% 64% 62% 58% 59% 59% 60% 57% 60% Innanlands I Vinnsluskip, afli úr fiskv.lögs. Gámar og landað erlendis Innanlands, afli af erlendum skipum ■ Vinnsluskip úthafsafli '90 '91 '92 '93 '94 '95 '96 '97 '98 '99 30% 62% '00 7/12 Útflutningstekjur og heildarskuldir sjávarútvegs M.kr áætl.

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.