Ægir

Árgangur

Ægir - 01.10.2000, Síða 20

Ægir - 01.10.2000, Síða 20
LÍNUVEIÐAR Notkun beitu við línuveiðar Að veiða fisk á (lang)línu; bæði í stórum og smáum stíl, á sér langa hefð í mörgum lönd- um. Línan er „óvirkt" veiðarfæri. Veiði á öng- ul með beitu byggist á þörf fisksins fyrir fæðu. Lyktin af beitunni berst með straumi og fiskur- inn rennur á hana og bítur á öngulinn. Góður árangur línuveiða byggist á þekkingu á hegðun fiska, eink- um við fæðuleit. Línan er um- hverfisvænt veiðarfæri. Þess vegna hafa þeir sem stjórna fiskveiðum hvatt til línuveiða. Línan hefur til dæmis engin áhrif á búsvæði hafs- botnsins, brottkast smáfisks og aukfisks er hverfandi miðað við önnur veiðarfæri, gæði aflans eru í hámarki og eldsneytiskostnaður lítill. Visst munstur má greina í sundvenjum fiska. Sumar tegund- ir, reyndar flestar, eru á ferli á daginn, en aðrar á næturnar. Gjarna er litið svo á að sundvirkni sé tengd breytilegu fæðuframboði og því sé fiskurinn misjafnlega mikið virkur í fæðuleit á vissum tímum sólarhringsins. Við línuveiðar er vitneskjan um það hvernig og hvenær fiskurinn leitar fæðu notuð. Þorskur, ýsa og langa eru virkust í dögun en synda þó mikið um allan daginn. Þess vegna ætti lína sem lögð er fyrir dögun að gefa meiri afla en sú sem lögð er þegar komið er fram á dag. Sú er líka raunin. Rannsóknir hafa sýnt að um það bil tvöfalt meira veiðist af ýsu á línu sem lögð er fyrir dögun en þá sem lögð er á daginn. Þorskurinn gaf aðra mynd. At- huganir sýndu að að hann finnur frekar beituna á daginn þegar hann syndir mikið en á nóttunni þegar hann syndir hægar og fer um minna svæði. Tegundir sem veiðast vel á línu eru yfirleitt lyktnæmar. Þorskur og svartþorskur finna til dæmis lykt af beitu þótt hún sé mjög dauf. Þorskur getur fundið lykt af beitu og staðsett hana í 700 metra fjarlægð. Lyktin berst fiskinum með straumi og hann bregður strax við og syndir andstreymis í áttina að veiðarfærinu. Þetta er af þremur ástæðum mikilvægt fyrir línusjómenn að vita. I fyrsta lagi er ljóst að lyktin af beitunni berst yfir stærra svæði ef línan er lögð þvert á strauminn heldur en með honum, og gefur þá væntanleg meiri afla. I öðru lagi ættu að vera meira en 700 metrar milli lína. Ef styttra er á milli draga þær að sér fisk af sama svæði. I þriðja lagi dreifist lykt frá línu sem lögð er við botninn mjög

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.