Ægir - 01.10.2000, Page 31
FJARSKIPTI & SJÁVARÚTVEGUR
Tæknival þróar netlausnir fyrir skipin:
Sítenging við Netið á sjónum
- „kostnaðarminni lausn en áður hefur þekkst," segir Ómar Örn Ólafsson hjá Tæknivali
Hvað væri lífið án tölvupósts, Netsins, heimasíðna,
gangaflutninga, netsíma? Einfaldara segja sumir - flókn-
ara segja aðrir! Fyrir fáum árum var tölvupóstur ekki
þekktur nema í stöku fyrirtækjum en í dag er Netið og
tölvupóstur á hvers manns vörum.
Enda partur af hinu daglega lxfi - nema í
háloftunum og á sjó. Nú er að verða
breyting þar á. Að minnsta kosti hvað
skipin varðar. Tæknival hf. hefur unnið
um tæplega tveggja ára skeið að tækni-
lausnum í netsamskiptum skipa og hefur
fyrirtækið komist niður á lausnir sem
byggja á tæknibúnaði sem best er þekkt-
ur í hernaði, notkun gervitungla við sam-
skiptin og að skip geti með þessari nýjust
lausn orðið sítengd um Netið. Nethnött-
ur kallast þessi nýja iausn Tæknivals og
má fá búnað, hugbúnað og uppsetningu á
rekstrarleigusamningi, þ.e. ákveðnu
mánaðargjaldi. Enn sem komið er má
ætla að hér sé fyrst og fremst á ferðinni
lausn fyrir stærri skipin.
Ómar Örn Ólafsson, tæknilegur ráð-
gjafi framkvæmdastjóra Tæknivals hf.,
segir sítengingu skipa um gervihnött
opna urmul nýrra möguleika. „Við horf-
um til þess að skip geti verið í sítengingu
við sín útgerðarfyrirtæki, tengst þeirra
innra staðarneti og þar með upplýsinga
og bókhaldskerfum. A þann hátt er skip-
ið eins og hver annar notandi á staðarneti
viðkomandi fyrirtækis, þó út á reginhafi
sé. Öll samskipti geta verið hraðari, ná-
kvæmari og betri, gagnaflutningar á
skjölum og jafnvel myndum verða auð-
veld, fyrirtækin hafa stöðugt nýjar upp-
lýsingar um t.d. framleiðslu í frystitogara
úti á sjó og þannig mætti áfram telja,“
segir Ómar Örn og bætir við að til að
tryggja öryggi í samskiptum skipa við
útgerðarfyrirtækin bjóði Tæknival upp á
sérstakan öryggisbúnað.
Að fylgjast með fjölskyldunni
í gegnum netmyndavél!
Ómar segir að koma þurfi fyrir á skipun-
um stóru loftneti, allt að tveimur metr-
um í þvermál. Bandbreiddin í flutningi
er mjög mikil og jafnvel meiri en gerist á
sumum stöðum í landi.
Innra netkerfi í skipum þykir eðlilegt
skref í þessari tækniþróun á hafinu og það
hefur í för með sér að skipverjar geta jafn-
vel verið með fartölvur í öllum klefum.
Þegar skipin eru svo sítengd þá býður það
upp á að þeir geti nýtt sér samskipti við
sína nánustu í landi. Það er eftir allt ekki
svo fjarlægt að frystitogarasjómenn geti
skotist inn á myndavél heima í eldhúsi í
landi og fylgst með fjölskyldunni snæða
kvöldskattinn!
,Já, ég tel þessi skref þýða algera bylt-
ingu í hinu daglega lífi sjómanna. Þeir
geta skipst á myndum við fjölskylduna í
landi, skrifast á við börnin, tekið jafnvel
þátt í heimaverkefnum með börnunum
eða notfært sér Nettengingu til að stunda
sjálfir fjarnám. Það eru einmitt sjómenn
sem vinna þannig vinnutíma að þeir
gætu skipulagt fjarnám meðfram vinn-
unni - og eru margir reyndar byrjaðir á
því,“ segir Ómar Örn.
Nethnötturinn getur orðið
útflutningsvara
Nethnöttur Tæknivals var á dögunum
kynntur á sýningu á Mallorca en þar var
um að ræða sýningu fyrir eigendur
skemmtiferðaskipa, en um borð í slíkum
fleyum þykir nettenging nauðsynleg og
sjálfsögð. Ómar Örn telur Tæknival hafa
töluverða möguleika á erlendum markaði
fyrir Nethnöttinn, enda hafi fyrirtækið
þarna komið fram með ódýra og áhuga-
verða lausn.
Ljósmynd: Sverrir 3ónsson
Nethnöttur Tæknivals á brúarþaki
flutningaskips Eimskipafélagsins.
„Tæknin sem við byggjum Nethnött-
inn á er t.d. þekkt í hernaði og við notum
einnig glænýja tækni fyrir Internet og
gervihnetti. I verkefninu vorum við í
sambandi við norskt fyrirtæki sem þekk-
ir vel til fjarskiptalausna fyrir olíuborp-
alla í Norðursjó þannig að við komum
víða við í þróun Nethnattarins. Mesta
byltingin við þessa lausn er þó mun
minni kostnaður en áður hefur þekkst og
allt bendir til þess að þróunin skili enn
ódýrari lausnum þegar frammí sækir,"
segir Ómar Örn.
Viðamiklar prófanir hafa nú þegar farið
fram á Nethnettinum og hér á heimamið-
um var tengingin reynd um borð í einu af
strandferðaskipum Eimskipafélagsins í
fyrravetur. Reynslan sýndi að sambandið
við gervihnöttinn var mjög stöðugt, þrátt
fyrir ólgusjói og það segir Ómar Örn að
hafi verið mikið fagnaðarefni, enda sé
sítenging algjört lykilatriði. „Netið er
svo sannarlega komið á sjóinn í nýrri
merkinu," bætir hann við.
TæknivaL kynnti ýmsar
tæknilausnir á
Agorasýningunni í
Laugardalshöll á
dögunum.