Ægir - 01.10.2000, Page 32
FJARSKIPTI & SJÁVARÚTVEGUR
„Símtöl milli útgerða og
skipa á veiðum er stór lið-
ur í fjarskiptaútgjöldum
útgerða. Þegar skipin eru
djúpt út af landinu og á
fjarlægum miðum hefur
verið notast við Inmarsat-
þjónustu sem er afar
kostnaðarsöm."
„Íslandssími hefur verið að bjóða upp á
þessa þjónustu á mun hagstæðara verði en
þekkst hefur til þessa. Þetta er einungis
hluti af þeirri þjónustu sem sjávarútvegs-
fyrirtæki eru að sækja til okkar. Auk
þessa bjóðum við upp á aðra þjónustuliði
og einnig heildarpakka í fjarskiptum,
sniðna eftir þörfum fyrirtækjanna, ódýr-
ari en þau hafa mátt venjast," segir Pétur
Pétursson upplýsinga- og kynningarstjóri
hjá Islandssíma hf.“
Horft til nýrra þjónustuþátta
við sjávarútveginn
Pétur segir að þeim sjávarútvegsfyrir-
tækjum hafi fjölgað sem fært hafa alla
fjarskiptaþjónustu sína til Islandssíma.
Kostnaður sem fylgi millilandasímtölum
Jarðstöð IsLandssima. „Opnar nýja möguleika, m.a. fyrir sjávarútveginn,"
segir Pétur Pétursson hjá Íslandssíma.
Ljósmynd: Sverrir Jónsson
Eigin jarðstöð opnar möguleika
- segir Pétur Pétursson hjá Íslandssíma
hafi verið upphafið að því að þau litu til
Islandssíma því fyrirtækið veiti þá þjón-
ustu á 15 til 20 prósentum lægra verði en
boðist hefur til þessa.
„Þessi fyrirtæki leggja einnig mikið
upp úr öryggi sambandsins. Til að svara
þeirri kröfu höfum við komið upp okkar
eigin jarðstöð sem tryggir stöðugt vara-
samband við útlönd. Reyndar gerir jarð-
stöðin okkur kleift að horfa til nýrra
þjónustuþátta við sjávarútveginn. Endur-
varp á sjónvarpsefni, stöðugt netsamband
við skip, sem eru að veiðum djúpt út af
landinu og fleira er tæknilega mögulegt í
dag. Hins vegar er þetta afar dýr þjónusta
og við höfum orðið varir við að útgerðir
veigra sér við að nýta hana af þeim sök-
um,“ segir Pétur og hann heldur áfram;
„Við sérhæfum okkur í gagnaflutning-
um og tengingum en í þessu tilviki þurf-
um við aðgang að gervitunglum og skip-
in þurfa sérstakan móttökubúnað til að
taka við sendingunum. Báðir þessir þætt-
ir, móttökubúnaðurinn um borð í skip-
unum og aðgangur að gervitunglum er
dýr, eins og ég sagði, og því eru þessir
hlutir enn í skoðun hjá okkur. Við erum
þó, ásamt samstarfsaðilum okkar, að leita
leiða til að lækka kostnaðinn og gera þetta
að raunhæfum möguleika. Sú vinna verð-
ur þó að fara fram með útsendingaraðilum
efnis, stjórnvöldum og fleiri aðilum."
Einblínt á fyrirtækjamarkað
Islandssími hefur starfað á íslenskum fjar-
skiptamarkaði í eitt ár um þessar mund-
ir. Þótt starfstíminn sé ekki langur hafa á
bilinu 30 til 40 af 100 stærstu fyrirtækj-
um landsins fært fjarskiptarekstur sinn
til þessa unga fyrirtækis. „Fjarskipti eru
sem latína í hugum margra því er rétt að
tíunda þá þjónustu sem Islandssími býð-
ur upp á. Fyrirtækið hefur einblínt á fyr-
irtækjamarkað frá stofnun en boðið ein-
staka þjónustuliði til heimila, eins og
frítt Internet, millilandasímtöl og nýver-
ið tók fyrirtækið að bjóða upp á almenna
símaþjónustu til heimila. Fyrirtækjum
hefur verið boðin hefðbundin talsíma-
þjónusta, Internettengingar og gagna-
flutningar. Á höfuðborgarsvæðinu hefur
Islandssími nýtt sér eigið ljósleiðaranet,
auk þess sem notast er við leigulínur og
örbylgjusamband í þjónustu við við-
skiptavini," segir Pétur Pétursson.
Á þeim tíma sem Íslandssími hefur
starfað hefur fyrirtækið verið að stækka
þjónustusvæði sitt. „I dag erum við í
stakk búin að veita sjávarútvegsfyrirtækj-
um öfluga síma-, gagnaflutningsþjón-
ustu og Netið á höfúðborgarsvæðinu, og
Akureyri. Innan tíðar verðum við búin að
leggja ljósleiðara um Suðurland til Vest-
mannaeyja. Þótt það séu fá sjávarútvegs-
fyrirtæki á Suðurlandi þá eru þau nokkuð
mörg í Vestmannaeyjum og þeim bjóðast
allir þeir kostir sem fylgja samkeppni -
bætt þjónusta og lægra verð. Við höfum
orðið varir við að innkomu okkar á mark-
að fylgir ánægja. Sjávarútvegsfyrirtæki,
eins og fyrirtæki á öðrum sviðum, treysta
meira á Netið og gagnaflutninga. Fjar-
skiptakostnaður hefur því vaxið til muna
og því telur hvert prósent í lægri kostn-
aði.“