Ægir - 01.10.2000, Side 34
Ljósmynd: Hreinn Magnússon
Gylfi Jónsson, forstöðumaður NMT og gervihnattasímaþjónustu Landssimans.
reikning fyrir hvern notanda. Hverjum
notanda er úthlutað leyninúmeri sem
ákvarðar einnig hvaða fjarskiptamiðla
hann hefur aðgang að. Utgerð getur veitt
aðgang að ákveðnum símanúmerum sem
skipverjar geta hringt í á kostnað útgerð-
ar.“
Símakostnaður hefur lækkað
Gervihnattatæknin hefur á síðustu miss-
erum opnað marga nýja möguleika í fjar-
skiptum skipa, segir Gylfi og nefnir þar
bæði almenn símtöl og tölvupóst, auk
þess sem bandbreiðari flutningsleiðir
Gervihnattatæknin opnar
marga möguleika
- segir Gylfi Már Jónsson hjá Landssímanum
„NMT kerfið er fjarskiptakerfið sem sjómenn á miðun-
um nota mest og gera má ráð fyrir að svo verði enn um
sinn. Þegar komið er dýpra út taka fjarskipti í gegnum
gervihnetti við og þar býður Síminn fjölbreytta tal- og
gagnaflutningsþjónustu í gegnum gervihnetti."
„Er þar bæði um að ræða þjónustu gegn-
um Inmarsat kerfið og jarðstöðina EIK en
öll skip sem eru með Inmarsatstöð hafa
frjálsan aðgang að þjónustu sem jarð-
stöðvar veita, svo og Globalstar kerfið
sem tekið var í notkun í síðasta mánuði.
Til að fá aðgang að þjónustu Globalstar
þarf bara að nota venjulegt GSM kort í
Globalstar símana," segir Gylfi Már Jóns-
son, forstöðumaður NMT og gervi-
hnattasímaþj ónustu Landssímans.
Tölvupóstur á milli skipa
Margar nýjungar í sfmamálum hafi kom-
ið fram á síðustu misserum sem gagnast
útgerðar- og sjómönnum vel. Tal-og
gagnaflutningar í gegnum Inmarsat-kerf-
ið fara vaxandi og kostnaður lækkar.
„Með tilkomu Globalstar síma gefst not-
endum nýr möguleiki með því að nota
GSM kerfið þar sem samband næst en
skipta má yfir á Giobalstar þegar út fyrir
þjónustukerfi GSM-kerfisins er komið.
Globalstar símarnir eru meðfærilegir og
henta því vel fyrir þá notendur sem oft
eru utan þjónustusvæða NMT eða GSM,“
segir Gylfi.
Internet C er þjónusta sem vaxandi eft-
irpsurn hefur verið eftir, en með henni
gefst möguleiki á venjulegum tölvupóst-
samskiptum milli skipa og lands og
einnig milli skipa. Gylfi getur einnig um
GAN, sem er þjónusta sem væntanleg er
fyrri hluta næsta árs í gegnum Inmarsat.
Hún býður upp á gagnaflutning 64 Kbit
milli skipa og lands. Þetta gefur svipaða
möguleika og flutningur á ISDN línu í
landi, sem nægir fyrir myndflutning, há-
hraða faxsendingu og gagnaflutning.
Fjöllínumælir skiptir kostnaði
Nýlega hafa Rásmark og Tölvubankinn
hannað Tel-Log símaeftirlitskerfið sem
Landssíminn er nú að setja á markað. Seg-
ir Gylfi að fyrir um áratug hafi Síminn
hannað búnað sem kallaður var Gjald-
mælir. Þar sem þessi búnaður hafi aðeins
tengst einni línu hafi fljótt komið óskir
um fjöllínumæli sem gæti haldið utan
um öll símafjarskipti, óháð hvaða kerfi
þau væru í.
Hann getur þess að með því að setja
upp Tel-Log búnað í skipunum sé hægt
að gefa skipverjum óhindraðan aðgang að
öllum fjarskiptamiðlum um borð í skip-
unum en halda jafnframt utan um notk-
un hvers og eins og skipta kostnaði rétt-
látlega. „Tel-Log símaeftirlitskerfið held-
ur utan um notkun með því að skrá notk-
un fjarskiptakerfa, reiknar síðan út verð í
samræmi við gjaldskrá þess kerfis sem
notað var og skrifar út sundurliðaðan
opni möguleika til myndsendinga. „Nýj-
ar fjarskiptaleiðir minnka einangrun sjó-
manna og þar sem símagjöld hafa farið
lækkandi þá eigum við á næstu árum eft-
ir að sjá svipaða þróun hjá sjómönnum og
í almennri símanotkun landsmanna,"
segir hann.
Það hefur löngum verið kvartað yfir því
að símakostnaður sjávarútvegsins sé mik-
ill, séu skip mjög djúpt sé það hreinn og
klár munaður að slá á þráðinn í land.
„Þetta er mikið að breytast. Sjómenn nota
NMT kerfið á miðunum umhverfis land-
ið og er verð á þeirri þjónustu er aðeins
frá 13 til 18 kr. mínútan. Verð á gervi-
hnattaþjónustu er hærra eða 150-250 kr.
fyrir mínútuna en það hefur farið lækk-
andi. Þó sjómönnum finnist þetta hátt þá
eru þessi verð ekkert verulega hærri held-
ur en ýmis erlend símfyrirtæki eru að
taka fyrir þjónustu við Islendinga sem
eru að hringja heim í gegnum GSM kerf-
ið, jafnvel frá nágrannalöndum okkar í
Evrópu.
Útgerðir vilja upplýsingar
„Fjarskipti í gegnum gervihnetti eiga eft-
ir að aukast verulega á næstu árum, bæði
almenn símaumferð og ekki síður gagna-
flutningur af ýmsu tagi," segir Gylfi Már
Jónsson. „Utgerðir vilja hafa stöðugar og
nákvæmar upplýsingar frá sínum skipum
og það eykur kröfur til góðra fjarskipta.
Sambærilegar þjónustur sem við sjáum
nú í GSM kerfunum eiga örugglega eftir
að nýtast sjómönnum í framtíðinni og
bandbreiðari gagnaflutningur gefur
aukna möguleika á flutningi efnis til og
frá sjómönnum."
34