Ægir - 01.10.2000, Síða 50
FRÓÐLEIKUR OG SKEMMTUN
Molva molva
Langa
Langan er mjög langur, sívalur og mjór beinfiskur með langan
haus. Kjaftur hennar er nokkuð stór og í honum eru fremur
smáar tennur. Augun eru frekar smá og á höku er skeggþráður.
Bakuggar eru tveir, sá aftari mjög langur, raufaruggi er einnig
langur en eyruggar eru í meðallagi stórir. Litur löngunnar er
grámórauður að ofan en ljós að neðan og er hreystur hennar
fremur smátt. Langan getur orðið um eða yfir 2 metrar að lengd.
Heimkynni löngunnar eru helst í Norðaustur-Atlantshafi og
Barentshafi. Hún er í Norðursjó við Bretlandseyjar, í Biskajaflóa
og áfram suður til Marokkó. Þá er hún við Færeyjar og Island.
Helst er hana þó að finna við Suðaustur-, Suður- og
Suðvesturland þar sem sjórinn er hlýrri. Langan er botnfiskur og
heldur sig aðallega á 80-200 metra dýpi þar sem hún lifir á alls
konar fiskum, svo sem síld, þorski, ýsu, spærling, kolmunna og
flatfiskum. Einnig étur hún krabbadýr, sæstjörnur og smokk-
fiska.
Hrygning fer fram hér við land í maí og júní á 150-300 metra
dýpi undan Suðurlandi. Einnig eru hrygningarstöðvar hennar
milli Islands og Færeyja og Færeyja og Skotlands, við
vesturströnd Noregs og í Biskajaflóa. Eggin eru um 1 mm í
þvermál og eru a.m.k. 5-20 milljónir. Lirfan er 3,2 mm við klak
og tveggja cm löng er hún orðin seiði. Seiðin halda sig undir
yfirborði sjávar en þegar þau ná 6-8 cm að lengd leita þau
botnsins.
Talið er að langan geti orðið að minnsta kosti 25 ára gömul.
Hér við land er langa einkum veidd á línu, í botnvörpu eða í
net. Aflinn er mest seldur ferskur til Bretlands, Þýskalands og
Frakklands, einnig saltaður til Frakklands, Noregs og Brasilíu
og fakaður til Frakklands og Belgíú. Undanfarin ár hefur aflinn
hér á landi verið 4.000 til 6.000 tonn.
KR0SSGÁTAN
& Fuqíar Hdtl- fuglac Sknia Sum u HrasaAi AS Nasla Yargnr OLcn Yartd- rác>inr) Saurga þuscláif Kornst Statf- samur FriSa Veiki Aular
Físk- a fnir
Pc'LuYta Skorpa Hvíldi 1. : • *
fiulaf frákart : *
Maiur 3. Tauga S iffta V.
Sí W nyi u - veL Ró'ncL V 5. ; > Blía uppi —V
F<séa Titi
þc Fraa1- koman Rán-fuql Skól( 7 V :
Sjúkclo'M suflit 'Oqna ► ►
SurygcA Bíiur : >
50