Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1920, Blaðsíða 30
28
Matt. 25, 34.—40. (Stanley Guðmundsson).
Jóh. 15, 1.—5. (Árni Sigurðsson).
Malt. 6, 1.—4. (Pjetur Magnússon).
Post. 27, 21.—25. (Halldór Kolbeins).
Lúk. 10, 38.-42. (Sveinn Ögmundsson).
Voru kandídatarnir látnir draga um textana og um röð
þá, er þeir gengu upp í við munnl. prófið. — Ræðunum
skiluðu kandídatarnir að viku liðinni.
í lok siðara misseris gengu tveir stúdentar undir embættis-
próf og stóðust það báðir.
Skriflega prófið íór fram dagana 1.—4. júní., en munnl.
prófið 14. og 15. júli. Prófinu lauk 15. júní.
Verkefni við skriflega prófið voru:
I. í gamlalestamentisfræðum:
Hvað lá upphaflega í orðunum Jahve, guð ísraels? Að
hverju leyti breytist sú hugmynd eftir að ísraelsmenn
eru orðnir akuryrkjuþjóð i Kanaanlandi?
II. í nýjatestamentisfræðum:
Matt. 10, 5.—16. »Þessa tólf .... falslausir sem dúfur«.
III. 1 samstæðilegri guðfræði:
Hvernig getur sá, sem aðhyllist þá skoðun, að um sið-
gæðisþróun sje að ræða með mannkyninu, gert sjer þess
grein, að Kristur hafi valdið aldalivörfum, án þess að
þróunin liafi slitnað, og hver eru helstu siðferðisgæðin,
er heiminum hafa hlotnast fyrir Krist?
IV. í kirkjusögu:
Náðarkenning Ágústíns og deilurnar um hana á 5. og
6. öld.
Prjedikunarlextarnir, sem tilkyntir höfðu verið kandídötun-
um V2 mánuði fyrir skrifl. prófið, voru þessir:
Matt. 21, 28.- 31 a. (Ingimar Jónsson).
Lúk. 12, 48b. (Gunnar Benediklsson).
Voru kandídatarnir látnir draga um texlana og um röð
þá, er þeir gengu upp í við munnlega prófið. — Ræðunum
skiluðu kandídatarnir að viku liðinni.
Prófdómendur voru hinir sömu og undanfarið ár. Þeir: