Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1931, Blaðsíða 221
221
inn mikill innan hvers flokks, en sameiginleg ættarmörk hafa
þó fundizt, þannig að öllum handritunum liefir verið skipt
í þrjár deildir. Er það Hort prófessor, sem á þessa skipting,
og liefir henni verið lialdið síðan í megin-dráttum. En hún
er á þá leið, að handritunum er skipt í Afríku-handrit, Ev-
rópuhandrit og' Ítalíu-handrit eftir því, livar menn halda að
þau liafi átt heima. Þó eru menn ekki alveg á sama máli um
það, hvort handrit þessi kunni að eiga sameiginlegan upp-
runa, eða hafi orðið lil hvert í sínu lagi. Benda sumir á mis-
mun þeirra, sem er svo mikill í orðavali og meðferð allri, að
óhug'sandi sc, að svo hafi afhakast í meðferð, en hinir benda
aftur á móti á sameiginleg einkenni, sem erfitt sé að gera
grein fyrir nema með þeirri skýring, að nppruni þeirra sé
sameiginlegur. Er auðvitað ekki neinn möguleiki fyrir nema
örfáa sérfræðinga að skera úr í slíkum málum. Jafnvel Hort
taldi sig ekki geta dærnt um þetta til fullnustu. En hvað sem
því líður, þá er munurinn á handritunum svo mikill, að ekki
þykir vafamál um flokkun þeirra, að minnsta kosti milli Af-
ríku-handritanna og Evrópu-handritanna. Um Italíu-hand-
ritin er aftur á móti nokkuð öðru máli að gegna eins og skýrt
mun verða frá. Verður nú farið hér nokkrum orðum um hvern
þessara flokka, og lýst þeim handritum, sem undir þá falla.
Þess má geta, áður en þessi lýsing er liafin, að verulega
góð regla er ekki á merking eða skrásetning latínu handrita.
En þó hefir það tíðkazt, að merkja þessi forn-latnesku
liandrit með smástöfum latneska stafrófsins. Er þeim raðað
i flokka eftir efni því, sem þau hafa, svo að stafaraðirnar
verða fjórar. Sum þessara handrita eru og samnefnd grísk-
um handritum og' einnig samnefnd innbyrðis. Er þetta allt
fremur óskýrt og ruglingslegt.
Afríku-handritin.
Ágústínus talar um „Codices Afros“, Afríku-handrit, sem
hevra má, að hann telur ekki jafn góð og' það, sem hann kall-
ar „Itala“. Má af þessu sjá, að hann gerir beinlínis mun á
liandrita-flokkunum. Voru það einmitt þessi orð hans, sem
komu Hort á þá leið, að flokka handritin eftir heimkynni.
Afríku-flokkinn er reynt að þekkja á samanburði við rit Af-
ríku-feðranna, einkum Cyprians. Að visu hafa ýmsir fræði-
menn dregið í efa, að þetta sé nokkur sönnun, því að þótt
orðalag þessara handrita líkist ritum Cjqjrians, þá sé sann-
leikurinn sá, að oss vanti allan samanburð annarsstaðar að.