Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1931, Blaðsíða 233
233
sé ekki hægt að fá textann að svo komnu. Mun það og satt
vera, að þessi útgáfa hafi verið mjög vönduð að frágangi
öllum og textavali.
En hún var náttúrlega ekki fullkomin, og því var ófært
að banna frekari aðgerðir. Að vísu er það ekki heldur bein-
línis gert, að banna textasamanburð, en það er alveg bannað
að brejda textanum eða jwenta aðra leshætti á blaðröndinni.
Og með því er raunverulega bannað að gera endurbætur á
texta Biblíunnar innan þeirrar kirkjudeildar, sem notar og
fyrirskipar einmitt þessa Biblíu. Það eru því guðfræðingar
annara kirkjudeilda, sem hafa unnið það starf síðan að
mestu. Er engin ástæða til þess, að rekja þá sögu hér eða
J.ýsa rannsóknum og' starfi Jieirra Lachmanns og Tischendorfs
og' annara biblíufræðinga að þessu. Þess má aðeins geta, að
John Wordswortli, er síðast var biskup í Salisbury, tók sér
fyrir Iiendur að rannsaka þetta mál allt til hlítar og varð
einhver allra lærðasti og' nákvæmasti visindamaður i þess-
um greinum, sem uppi hefir verið. Ilann hafði sér að sam-
verkamanni H. J. White, sem varð jafnoki hans að lærdómi.
Eftir 12 ára rannsóknir hófu þeir útgáfu sína, og notuðu allt
efni það, sem þeir höfðu að sér viðað. Er þetta sú vandað-
asta útgáfa af Vúlgata, sem fram að þeim tima hafði verið í
ráðizt og' mun mega telja hana mjög nærri texta sjálfs Ifíero-
nýmusar.
Að tilhlutan Píusar X. ])áfa hefir verið hafið starf að út-
gáfu latnesku Biblíunnar, er taki öllum öðrum fram. Á að
rannsaka öll hin fornu handrit og leiða i ljös ný, ef til eru, og
bera allt vandlega saman. Má nærri geta, að þetta verk mun
taka afar langan tíma. En tilgangurinn er sá, að fá texta
Híeronýmusar sem allra lireinastan. Er nú af sem áður var,
er Híeronýmus stóð í illdeilum út af þessari endurskoðun
sinni á latnesku þýðingunni.
Handritin. Fjöldi þeirra og skrásetning.
Það mun mega segja ýkjulaust, að liandritin af Vugata
sé óteljandi. Þau eru miklu fleiri en af gríska textanum. A-
ætlanir um fjölda þeirra eru svo ólíkar, að þær eru varla liaf-
andi eftir. Venjulegast mun þó vera fylgt áætlun Whites um,
að þau muni vera einliversstaðar nokkuð vfir 8000. En það
hafa líka komið áætlanir frá lærðum mönnum uni það, að
þau muni vera nær 30000, ef talin eru með öll brot. Gregory
telur ekki nema 2472 auk þeirra 46, sem Tischendorf notaði,
30