Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1939, Síða 17
15
Sjóðstofnun til stúdentaskipta við Columbia-háskóla. Stein-
grímur Arason kennari stofnaði með bréfi 2. júlí 1939 sjóð,
í þeim tilgangi að koma á stúdentaskiptum milli Iláskóla
lslands og Columbia University í New York. Stofnfé sjóðs-
ins er 5000 kr. veðdeildarbréf, sem er gjöf frá stofnanda, og
eignir félagsins íslendings, sem nú er bætt störfum: 3000 kr.
i lilutabréfum b.f. Útvegsbanka Islands og kr. 4521.89 í
sparisjóði.
Prófessoraíbúðir. Háskólaráðið samþykkti á fundi 28. sept.
1938 að ávaxta nokkurn hluta Sáttmálasjóðs með því að
reisa íbúðarliús á háskólalóðinni fvrir liáskólakennara.
Leiga eftir liúsin sé 4%% af kostnaðarverði, að viðbættu
fyrningargjaldi 14%; ennfremur greiði leigjandi lögboðin
fasteignagjöld af húsinu og annist viðhald þess. Boðið var til
semkeppni um gerð húsanna og lieitið 1000 kr. verðlaunum,
sem veitt voru úr Prófgjaldasjóði. Verðlaununum var skipt
að jöfnu milli arkitektanna Ágústs Pálssonar og Bárðar ís-
leifssonar. Ekkert hefur enn orðið úr framkvæmdum i þessu
máli.
Náms- og húsaleigustyrkur. Stúdentaráðið fór þess á leit,
að stúdentum væri gefinn kostur á að gera tillögur um skipt-
ing námsstyrks og liúsaleigustyrks milli stúdenta. Féllst há-
skólaráðið á það og samdi reglur um úthlulun náms- og
húsaleigustvrkja, sem eru prentaðar á bls. 66—68. 1 sambandi
við þetta var samið nýtt fjárbagsvottorð fvrir umsækjendur
um stvrki, skv. tillögum stúdentaráðsins.
Styrktarsjóður Hannesar Árnasonar. Háskólaráðið auglýsti
eftir umsóknum um stvrk úr sjóðnum, samkv. fyrirmælum
skipulagsskrárinnar. Umsækjandi var aðeins einn, dr.
Matthías Jónasson, og var honuin af ríkisstjórninni veittur
styrkur úr sjóðnum í næstu 4 ár, eftir tillögum háskóla-
ráðsins.
Kanadasjóður. Háskólaráðið veitti Jakob Sigurðssyni stúdent
meðmæli um styrk úr sjóðnum.