Árbók Háskóla Íslands

Volume

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1980, Page 15

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1980, Page 15
Kaflar úr ræðum rektors Háskóla íslands 13 sögu hans. Sem sjá má, rís nú hús fyrir læknadeild og tannlæknadeild á Landspít- alalóð, og nýlega hefur fengist byggingar- leyfi fyrir svonefndu hugvísindahúsi á há- skólalóð. Einnig bólar á Þjóðarbókhlöðu, sem ákveðið hefur verið að steypa upp, en hún mun nýtast háskólanum að hluta. Fagna ber því sem vel gengur og vel er gert. Fé til framkvæmda í þágu háskólans á Landspítalalóð og háskólalóð kemur á þessu ári sem undanfarin tvö ár einvörð- ungu af tekjum Happdrættis Háskóla ís- lands. Af þessu má ráða hvílíkur bakhjarl happdrættið er háskólanum. Á þremur næstu árum hefur fjárveit- ingarvaldið heitið verulegum framlögum til nýbygginga. Háskólinn er afar þakklátur fyrir þetta og eygir með því von um að brjótast út úr þeim húsnæðisþrengingum sem hann er i og að geta sameinað kraftana, en starfsemin er nú afar dreifð um borg og bý. Sérstök nefnd hefur unnið að skipulags- málum á háskólalóð, og er fastlega vonast til að unnt verði að fá samþykkt skipulag fyrir lóðina á næsta ári. Sjálfræði Umsvif háskólans og stofnana hans í rekstri eru umtalsverð í peningum reiknað og mannahaldi. Ekki síst í sambandi við stöðuveitingar og ráðstöfun fjár til rann- sókna erháskólanum sjálfræði nauðsynlegt. Eigi vilji hans að ráða verður hann jafnan að taka ábyrgar ákvarðanir í eigin málum. Með því getur hann sýnt festu og einurð þegar á reynir. Rannsóknir og þjónustustarfsemi Sé rannsóknarátak mælt í fjárútlátum, sýna tölur að hlutur háskólans í allri rann- sóknarstarfsemi í landinu fer vaxandi. Þótt erfitt sé að mæla nytsemi eða árangur rannsókna, er fyllsta ástæða til að ætla að veruleg fylgni sé milli kostnaðar og árangurs þegar til lengdar lætur. Gerðar eru kröfur til háskólakennara um vísindalega hæfni og þeim ætlað að sinna rannsóknum í starfi sínu. Allir gera þeir það meira og minna, sumir meira, en aðrir minna. Ástæðurnar eru margvíslegar. Stundum er aðstöðuleysi Þrándur í Götu, þar sem ýmsar rannsóknir krefjast mikils fjár til tækjakaupa og þjálfaðs aðstoðar- fólks. Stundum vantar þann neista sem já- kvætt rannsóknarumhverfi tendrar. Tals- vert af rannsóknum sem starfsmenn há- skólans eiga óbeina aðild að fer að sjálf- sögðu fram utan hans. Hérer um margstrent mál að ræða sem ekki er unnt að gera við- hlítandi skil á þessum vettvangi. en ég get ekki látið hjá líða að nefna nokkur atriði sem varða framtíð rannsókna í háskólanum. í fyrsta lagi verður einstaklingurinn að hafa hvata til dáða, örvandi andrúmsloft utan skóla sem innan. Viðurkenning þjóð- félagsins hefur þar oft mikil áhrif. Sam- keppni um stöður og verðlaun fyrir árangur halda mönnum við efnið. Síðast en ekki síst er fjárhagsleg örvun mikils virði. I því fast- launakerfi sem við búum við er erfitt um vik í þessu efni. Þó hefur í kjarasamningum fengist viðurkenning á umbun fyrir sérstök rannsóknarverkefni. En betur má ef duga skal, og háskólinn verður að móta kerfi sem hvetur menn til rannsókna og það innan vébanda skólans í ríkara mæli en verið hef- ur. í öðru lagi reynir sífellt meira á það að hve miklu leyti og á hvaða sviðum háskólinn á að leggja rækt við þjónusturannsóknir sem tæknilega séð gætu verið framkvæmdar annars staðar. Einnig þarf að ákveða og samræma verðlagningu fyrirslíka þjónustu. Talsverð starfsemi af þessu tagi á sér stað þegar, sbr. Reiknistofnun háskólans, rann- sóknarstofur í læknadeild, Líffræðistofnun og Verkfræðistofnun, svo og Raunvísinda- stofnun háskólans. í þessu sambandi vil ég geta þess að Reiknistofnun háskólans hefur nýlega stóraukið vélakost sinn, en um
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102

x

Árbók Háskóla Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.