Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1980, Blaðsíða 76
74
Árbók Háskóla íslands
Æskilegt er, að nefndin skili fyrstu tillög-
um sínum til háskólaráðs eigi síðar en í
aprílmánuði 1981.“
Tillagan var samþykkt samhljóða.
23.04.80
Skipun manna í laganefnd til tveggja ára:
Af hálfu fastra kennara: Jónatan Þór-
mundsson prófessor. er verði formaður
nefndarinnar, og Gunnar Guðmundsson
prófessor.
Af hálfu stundakennara: Jón Torfi
Jónasson.
Af hálfu stúdenta: Atli Eyjólfsson og
Stefán Jóhann Stefánsson.
Af hálfu menntamálaráðuneytis: Sigríður
Thorlacius.
Af hálfu yfirstjómar: Kennslustjóri og
háskólaritari til skiptis. 14.05.80
Samstarfsnefnd
Fulltrúi háskólaráðs í Samstarfsnefnd
[Háskóla Islands og ráðuneyta menntamála
og fjármála] var kosinn Sveinbjöm Bjöms-
son prófessor. 18.10.79
Stundakennslunefnd
Fulltrúi háskólaráðs í stundakennslu-
nefnd til tveggja ára frá 1. janúar 1980 var
kosinn Þorvaldur Búason, og Eggert Briem
til vara. 06.12.79
II. Málefni deilda og námsbrauta
Heimspekideild
Bréf mrn., dags 13. þ.m., um að Jón Að-
alsteinn Jónsson hafi verið skipaður for-
stöðumaður Orðabókar háskólans frá 1.
janúar 1980 að telja. 20.12.79
Samþykkt einróma tillaga heimspeki-
deildar, að Haraldi Sigurðssyni, fyrrv.
bókaverði, verði veitt heiðursdoktorsnafn-
bót. 09.06.80
Beiðni heimspekideildar um setningu
lektors í dönsku. Rektor lagði til, að há-
skólaráð fari þess á leit við menntamála-
ráðuneytið, að heimilað verði að auglýsa til
umsóknar lektorsstöðu í dönsku til tveggja
ára út á fjárveitingu til prófessorsembættis í
dönsku. Tillaga rektors var samþykkt með 7
atkvæðum gegn 6. 23.04.80
Verkfræði- og raunvísindadeild
Rektor skýrði frá því, að samkomulag
hefði náðst við Tækniháskólann í Karlsruhe
um viðurkenningu á prófum frá verkfræði-
skorum Háskóla Islands, þannig að viðbót-
amám í 1V4 ár dugar til diplom-gráðu í
verkfræði. 11.09.80
Erindi Reiknistofnunar háskólans frá 22.
júní s.l. um lán til tölvukaupa tekið fyrir að
nýju. Rektor bar fram svofellda tillögu:
„Háskólaráð heimilar fyrir sitt leyti, að
Reiknistofnun háskólans fái þriggja ára lán
úr Byggingasjóði háskólans með sömu
kjörum og hann nýtur í Seðlabanka íslands,
til kaupa á tölvu af gerðinni WAX 11/780.
Lánsfjárhæð miðist við 45 milljónir króna
skv. greinargerð Reiknistofnunar frá 22.
júní 1979 að teknu tilliti til verðbreytinga
fram til þess tíma að kaupin eru gerð, enda
tefji það ekki fyrirhugaðar byggingafram-
kvæmdir háskólans".
Tillaga rektors samþykkt með 9 atkvæð-
um gegn 1. 01.11.79