Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1980, Qupperneq 75
8
Kaflar úr gerðabókum háskólaráðs
I. Stjórn háskólans
Guðmundur Magnússon rektor bauð há-
skólaráð velkomið til fyrsta reglulegs fundar
háskólaársins og jafnframt fyrsta fundar á
kjörtímabili hans í rektorsembætti. Lct
hann í ljós ósk um gott samstarf í háskóla-
ráði. 27.09.79
Reglugerð
Undirbúningsnefnd, sem falið hafði verið
að undirbúa afgreiðslu tillögu félagsvís-
indadeildar um leiðréttingu á reglugerð há-
skólans, þ.e. inntöku ákvæða um nám í
uppeldis- og kennslufræðum, lagði fram
svofellda tillögu:
1. Samþykkt verði að þess verði farið á
leit við menntamálaráðherra, að við reglu-
gerð nr. 79/1979 fyrir Háskóla íslands bæt-
ist ný grein:
I13.gr.
Nám í uppeldis- og kennslufrœðum
Nám i uppeldis- og kennslufræðum tekur
til námsefnis í uppeldisfræði, uppeldislegri
sálarfræði, kennslufræði og kennslu, og skal
námsskrá ákveðin með tilliti til sérþarfa
kennslu og uppeldisstarfa.
Nám þetta skal alls svara til 30e. Þó er
heimilt að veita stúdentum, sem hafa lokið
samsvarandi námskeiðum og/eða aflað sér
verulegrar reynslu af kennslustörfum, und-
anþágu frá tilteknum námskeiðum.
Háskólinn skal láta stúdentum, er ljúka
þessu námi, í té sérstakt prófvottorð.
Heimilt er að hafa samvinnu við Kenn-
i) ..
Menntamálaráðuneyti jafnan skammstafað svo.
araháskóla íslands um þetta nám og semja
um, að hann annist tiltekna þætti þess.
Núverandi 113. gr. verði 114. gr.
2. Háskólaráð skipi 5 manna nefnd er
geri efnislega athugun á og hugsanlega drög
að tillögu háskólaráðs til yfirvalda um laga-
ákvæði er lúta að kennsluréttindum nem-
enda er háskólinn brautskráir.
Eftir nokkrar umræður voru tillögur
nefndarinnar samþykktar samhljóða.
29.01.80 13.03.80
Bréf mm.1), dags. 6. þ.m. um að staðfest
hafi verið breyting á reglugerð háskólans
varðandi nám í uppeldis- og kennslufræð-
um. 14.05.80
Laganefnd
Rektor lagði fram svofellda tillögu að er-
indisbréfi fyrir laganefnd:
„Lagt er til að nefnd, sem samþykkt var
að skipa á háskólaráðsfundi 13. mars s.l. til
endurskoðunar á lögum og reglugerð há-
skólans, beri heitið laganefnd.
Sé henni ætlað að vinna úr þeim breyt-
ingartillögum sem lagðar hafa verið fyrir
ráðið, en ekki hlotið afgreiðslu, svo og til-
lögum sem berast á starfstíma hennar og
vísað verður til hennar, annaðhvort til um-
sagnar eða frekari athugunar. Einnig hafi
nefndin frumkvæði að breytingum.
Þá megi óska eftir áliti nefndarinnar, ef
ágreiningur verður um túlkun ákvæða gild-
andi laga og reglugerðar.