Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1988, Page 13
Ræður rektors Háskóla íslands
11
Sjálft hugvitið, þekkingin hjaðnar sem
blekking
sé hjarta ei með sem undir slær.
Hver þjóð sem í gæfu og gengi vill búa
á guð sinn og land sitt skal trúa.
Við óskum ykkur gæfu og gengis í lffi og
starfi. Við óskum ykkur og fjölskyldum ykkar
farsældar í framtíðinni.
Guð veri með ykkur.
Brautskráning kandídata 27. febrúar 1988
Kœru kandídatar, góöir gestir og samstarfs-
menn!
Háskóli íslands leitast við að veita breiða
og góða undirstöðumenntun. Jafnframt kapp-
kostar hann að veita þjálfun sem er sambærileg
við kröfur erlendra háskóla. Háskóla íslands
ernauðsyn að standast alþjóðlegan samanburð,
°g í raun standast okkar kandfdatar kröfur er-
lendra háskóla og famast vel í samkeppni við
heimamenn í framhaldsnámi erlendis.
Kröfur til háskóla vaxa stöðugt og einnig
vandi þeirra. Framfarir í vísindum eru hraðari
nú en nokkru sinni, og verða gæði vísindastarfa
aðeins mæld með alþjóðlegri mælistiku. Vís-
indin eru alþjóðleg. Pað eru engin ensk eða ís-
lensk vísindi til, aðeins vísindi. Samskipti vís-
indamanna þjóða á meðal vaxa stöðugt, og
eru slík alþjóðleg samskipti mjög mikiivæg,
einkurn fámennum þjóðum.
Háskóli íslands vinnur markvisst að eflingu
slfks alþjóðlegs samstarfs, bæði til að auð-
velda kandídötum aðgang að erlendum háskól-
um til framhaldsnáms og til að hvetja til kenn-
araskipta, að fá hingað erlenda vísindamenn
°g senda okkar vísindamenn til tímabundinna
starfa við erlenda háskóla.
Ahugi erlendra háskóla á samstarfi við Is-
lendinga fer vaxandi, enda eru bæði land og
þjóð áhugaverð viðfangsefni. Fyrir skömmu
var ég í Japan í boði þarlendra háskóla. Frum-
kvæðið að formlegu samstarfi kom frá Jap-
an» og er áformað að taka upp samskipti Há-
skóla íslands og Dohto háskóla á Hokkaido-
eyju, nyrst í Japan.
I heimsókn minni til Hokkaido kom ég m.a. í
háskóla í Mombetsu, en það er fiskimannabær á
norðurströnd eyjarinnar. Ár hvert eru höfnin og
hafið lokuð í nokkra mánuði vegna haffss-reks
frá Síberíu. Olli þessi haffs atvinnuleysi í bæn-
um á hverjum vetri. Þennan vanda leystu bæj-
arbúar loks á mjög einfaldan hátt. Þeir keyptu
sér ísbrjót og selja nú ferðamönnum hálftíma
ferðir með ísbrjótnum til að skoða hafísinn frá
Síberíu. Stofna bæjarbúar einnig til íshátíðar á
hverjum vetri og reisa ísstyttur og önnur furðu-
verk úr tilhöggnum ís. Bæjarbúar hafa þannig
breytt þessum vágesti og foma fjanda í vel-
komna, nýja tekjulind. í stað fiskveiða laða þeir
ferðamenn til bæjarins. Þetta er ágætt dæmi um
hugvitssemi og hvemig menn geta skapað auð-
lind úr erfiðleikum.
Með slíkri hugvitssemi má einnig nýta marg-
ar þær matarholur sem hér finnast, þegar grannt
er skoðað. Fellur það í ykkar hlut að skapa auð-
lindir úr þeim efnum og afurðum sem til falla
á landi og úr sjó.
Þessir ágætu gestgjafar mínir í Japan telja sig
geta lært sitthvað af okkur, og vilja þeireinkum
kynna sér þrjú svið hér á íslandi. í fyrsta lagi
vilja þeir kanna hvemig við byggjum hús sem
standast erfitt veðurfar, kulda, storma og regn. í
öðru lagi hafa þeir áhuga á hagnýtingu jarðhita,
en í þeim efnum virðast þeir eiga sitthvað ólært.
Í þriðja lagi vilja þeir vita hvemig félagslegri
þjónustu er háttað á íslandi, hvemig við mennt-
um fatlaða og hjálpum þeim til sjálfsbjargar.
Þótt við íslendingar séum fáir þá erum við
ekki nauðsynlega smáir, við getum rniðlað
öðrum þekkingu og reynslu þegar vel hefur tek-
ist að leysa vissan vanda. Það er jafnframt lífs-
nauðsyn að við nýtum okkur reynslu annarra