Árbók Háskóla Íslands

Årgang

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1988, Side 14

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1988, Side 14
12 Árbók Háskóla íslands og lærum af þeim, og einnig af mistökum þeirra. Fyrir skömmu var haldið heilbrigðisþing hér í Reykjavík sem fjallaði um íslenska heilbrigð- isáætlun. Þessi heilbrigðisáætlun ætti að vekja áhuga ykkar því hún varðar framtíð ykkar. Árið 1986 samþykkti rfkisstjómin að vinna að landsáætlun í heilbrigðismálum með hlið- sjón af stefnu Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinn- ar, sem nefnd er „Heilbrigði allra árið 2000“. Áætluninni er m.a. ætlað að marka stefnu í að- gerðum til að koma í veg fyrir sjúkdóma og slys svo sem verða má. Á meðal nýmæla í þessari áætlun er að mað- urinn iíti ekki á sig eingöngu sem neytanda heldur sem þátttakanda í heilbrigðisþjónust- unni, og honum sé ljóst hvað hann getur sjálf- ur gert fyrir sig og hvað heilbrigðisþjónust- an getur gert fyrir hann. Forsendur þess að slfk viðleitni beri árangur er aukin fræðsla og þekking hins almenna borgara, bæði yngri og eldri, á heilbrigðu líferni, á hættum sem valda heilsutjóni og á heilbrigðiskerfinu sem þjónar fólkinu. I þessu sambandi er vert að vekja athygli á því að ef einstaklingurinn á að vera virk- ur þátttakandi í heilbrigðisþjónustunni verður hann að hafa nauðsynlega þekkingu á líkanis- og heilsufræði. Slíka þekkingu þarf að byggja upp í áföngum í skólakerfinu og viðhalda og auka með almenningsfræðslu, einkum í sjón- varpi. Forvamarstarf ber því aðeins árangur að ein- staklingurinn viti og skilji hvað ber að forð- ast og hvers vegna. Einstaklingurinn þarf að öðlast þessa þekkingu í áföngum eftir því sem hann hcfur þroska til og þörf fyrir. Fræðslan má ekki vera takmörkuð við skólakerfið, hún þarf að ná til fólks á öllum aldri. Árétta ber að hollt fæði og hófsemi eru meðal homsteina heilbrigðis. Heilbrigðisáætlun þcssi cr merkileg viðleitni til að vinna að heilbrigði allra og fyrirbyggja eða fækka slysum. Hins vegar er komið fram á Alþingi íslendinga bjórfrumvarpið svokall- aða þar sem gert er ráð fyrir að heimila sölu á áfengum bjór. Ef bjórfrumvarpið verður sam- þykkt mun það einmitt vinna gegn markmið- um hcilbrigðisáætlunarinnar. Sagt er aðhófiega drukkið vín gleðji mannsins hjarta, og er ég því raunar sammála. Á liðnum árum hef ég í kennslu minni gjarnan frætt nemendur um vín- gerð og um eiginleika mismunandi víntegunda og um mismun á léltum vínum, styrktum vín- um og brenndum vfnum. Undirstöðuþekking á víni og öðrum áfengum drykkjum tilheyrir al- mennri menntun, þessa drykki verðum við að kunna að meðhöndla. Bjórinn virðist saklausasta áfengið, en hann er það ekki í raun. Bjórinn gerir menn sljóa og syfjaða, slævir vitund og viðbragðsflýti og veldur aukinni slysahættu þótt ekki komi til ölvunar. Skoðanakannanirgefa til kynna að ungt fólk, fólk undir fertugsaldri, sé hlynntara áfengum bjór en þeir sem cldri eru. Ungt fólk lendir einnig í fieiri umferðarslysum en þeir eldri, og er ölvun við akstur æði oft orsökin. Með aldr- inum verða menn raunsærri. Þcir verða reynsl- unni rfkari, en það er oft sú reynsla og þær raun- ir sem menn vildu vera án. Munur á bjór og víni eða sterkum drykkj- um er m.a. sá að við drykkju á víni eða sterkara áfengi gera menn sér ljósa hættuna. Þeir taka síður áhættu og aka sjaldnar sjálf- ir. Bjórinn blekkir og gefur falska öryggis- kennd. Menn telja sér trú um að þeir séu jafnsnjallir eða jafnvel snjallari ökumenn eft- ir bjórdrykkkju. Slíkar blekkingar valda bæði eignatjóni og heilsutjóni, hærri bifreiðatrygg- ingargjöldum og auknum útgjöldum skattborg- ara. Kæru kandídatar. Eg hef aðeins rætl cina hlið þessa margþætta máls. Við búum hér í góðu samfélagi. Þetta samfélag getur verið mun betra. Það getur einnig orðið veiTa. Heil- brigðisáætlunin getur stuðlað að enn betra sam- félagi, því hún stefnir að því að koma í veg fyrir sjúkdóma og slys. Áfengur bjór mun hafa andstæð áhrif og jafnframt vinna gegn átaki í umferðarmálum og þeini viðleitni að bæta um- ferðarmenninguna.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200
Side 201
Side 202
Side 203
Side 204
Side 205
Side 206
Side 207
Side 208
Side 209
Side 210
Side 211
Side 212
Side 213
Side 214
Side 215
Side 216
Side 217
Side 218
Side 219
Side 220

x

Árbók Háskóla Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.