Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1988, Síða 15
Ræöur rektors Háskóla íslands
13
Umræðan um sterkan bjór eða iéttan bjór er
aðeins dæmi um viðfangsefni sem þið þurfið
að kynna ykkur og taka afstöðu til. Afstaða
ykkar lil ýmissa mála mun breytast með tím-
anum og mótast af reynslu ykkar. Þið munuð
oft skipta um skoðun, því viðhorfin breytast og
gildismat ykkar breytist með aldri, reynslu og
þroska. Það er því ekki nema eðlilegt að for-
eldrar ykkar leggi annað mat á hlutina en þið
gerið nú, og eftir aldarfjórðung hafið þið svip-
uð sjónarmið og foreldrar ykkar í dag.
A þessari stundu fögnum við nteð ykkur
áunnum sigri og óskum ykkur gæfu og gengis
í lífsbaráttunni. Sum ykkar rnunu hljóta góð-
an byr í seglin, en aðrir munu sigla krappan
sjó. Gætið þess að kollsigla ykkur ekki, lækkið
frekar seglin ef veður gerast válynd.
Háskóli Islands hefur veitt ykkur gott vega-
nesti sem opnar margar dyr tækifæra og mun
þetta veganesti reynast giftudrjúgt.
Settu þér háleitt markmið í lífinu, kæri kandí-
dat, og njótlu leiðar þinnar að markinu. Verk-
efnin bíða hvarvetna f okkar þjóðfélagi og með
eldmóði og atorku, með samúð og tillitssemi
mun þér famast vel í lífinu.
Guð veri með ykkur.
Háskólahátíö 25. júní 1988
Forseti íslands, Vigdís Finnhogadóttir,
menntamálaráðlierra, Birgir ísleifur Gunnars-
son og frú Sonja Backman, vœntanlegir heið-
ursdoktorar, kœru kandídatar og gestir, ágœtu
somstaifsmenn!
Eg býð ykkur hjartanlega velkomin á þessa
hátíð er Háskóli íslands sæmir fjóra valinkunna
menn doktorsnafnbót í heiðursskyni og þeg-
ar við lítum á framvindu helstu mála í há-
skólastarfinu og afhendum kandídötum próf-
skírteini.
Háttvirta samkoma!
A þessu háskólaári voru skráðir til náms
4293 nemendur, þar af voru nýinnritanir 1775,
en útskrifaðir verða alls 570 kandídatar. Há-
skólaárið hefur verið árangursríkt og starfsem-
in vaxandi, enda starfsandi góður. Með auk-
'nni kynningu á starfsemi Háskólans á síðustu
misserum hefur skilningur á starfi okkar úti
' þjóðfélaginu vaxið og jafnframt stuðningur
yið Háskólann. Aukinn skilningur og stuðn-
'ngur kemur einnig fram í auknum rekstrar-
fjárveitingum til Háskólans á þessu ári. Komið
var til móts við óskir okkar, en í tillögum Há-
skóla íslands um rekstrarfjárveitingar var lögð
megináhersla á þrennt: Á eflingu Rannsókna-
sjóðs Háskólans, á eflingu Háskólabókasafns
og á aukið starfslið við stjómsýslu, kennslu og
rannsóknir.
Rannsóknasjóður Háskólans hefur verið
efldur verulega. Fjárveiting hefur aukist úr
12.7 m.kr. 1987 í 34.2 m.kr. 1988. Vænta má
jafnframt aukinna tekna í Rannsóknasjóð af
10% rannsóknaskatti sem lagður er á þjónustu-
rannsóknir, en aðstaða til slíkra starfa batn-
ar óðum. Fjárveitingar úr sjóðnum eru ætlað-
ar til vel skilgreindra rannsóknaverkefna, en
slik vinnubrögð krefjast vandaðs undirbúnings
rannsókna, og skila ber framvinduskýrslu þar
sem gerð er grein fyrir árangri rannsókna á
liðnu ári. Ráðstöfun á fé úr sjóðnum tekur ein-
ungis mið af vísindalegu gildi verkefna, og
hefur sjóðurinn nú þegar orðið ntikil lyfti-
stöng fyrir allar grunnrannsóknir við Háskóla
íslands. Lýsingu á rannsóknaverkefnum, hvað
er gen og hvers vegna, er að finna í Rannsókna-
skrá Háskólans, sem gefin var út 1986. Rann-
sóknaskráin verður gefin út aftur 1989 og mun
ná yfir rannsóknir á árunum 1987 og 1988.
Byggingaframkvæmdir á vegum Háskóla ís-
lands jukust á síðasta háskólaári vegna auk-
inna tekna af Happdrætti Háskólans. Frani-
kvæmdafé árið 1987 var áætlað 120 m.kr.,
þar af 110 m.kr. frá Happdrætti Háskólans.
Tekjur af Happdrætti Háskólans urðu í raun