Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1988, Blaðsíða 21
Doktorspróf. Formálaraö heiöursdoktorskjöri
19
vanda velferðarríkja, vísindastefnu og rann-
sóknir. Auk margvíslegra embættisstarfa og rit-
starfa hefur Jónas Haralz unnið mikilvægt starf
í þágu Háskóla íslands, en hann var formaður
Háskólanefndar sem starfaði árin 1966-69.
Af þessum sökum telur Háskóli íslands sér
sæmdarauka að heiðra Jónas Haralz með titlin-
uni doctor oeconomiae honoris causa. Sé það
góðu heilli gjört og vitað.
Félagsvísindadeild
Jóhannes Nordal lauk doktorsprófi í félags-
fræði frá London School of Economics 1953
með merkri ritgerð um þjóðfélagsbreylingar á
Islandi á 18. öld, fyrsta doktorsriti íslendings
í félagsfræði. Hann hefur alla tíð síðan ver-
'ð afkastamikill rithöfundur um þjóðfélagsvís-
indi, hagfræði og efnahagsmál. Meðal nær 100
prentaðra ritsmíða hans um þessi efni eru merk-
ar ritgerðir um menntun, menningu og hag-
sögu íslendinga, gildi þjóðfélagsvísinda, rík-
isvald og frelsi, banka- og peningamál, orku-
búskap íslendinga og stjóm efnahagsmála. Dr.
Jóhannes Nordal hefur verið bankastjóri Seðla-
banka fslands frá stofnun hans 1961. Auk viða-
mikilla embættisstarfa og ritstarfa hel'ur hann
unnið fræðum og vísindum á íslandi ómetan-
'egt gagn með störfum sínum í þágu Vísinda-
sjóðs um meira en 30 ára skeið.
Af þessum sökum telur Háskóli Islands sér
sæmdarauka að heiðra dr. Jóhannes Nordal
með titlinum doctor scientiae rerum sociaitum
honoris causa. Sé það góðu heilli gjört og vit-
að.
Raunvísindadeild
Gunnar Böðvarsson fæddist í Reykjavík 8.
ágúst 1916. Hann lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavik 1934, fyrri hluta
prófi f vélaverkfræði í Miinchen 1936 og loka-
Pi'ófi í stærðfræði, kraftfræði og skipavélfræði
í Berlfn 1943.
Gunnar dvaldist í Danmörku til stríðsloka.
Við heimkomu 1945 réðst hann til Rafntagns-
eftirlits ríkisins. Hann varð yfirverkfræðingur
Jarðborana rikisins og Jarðhitadeildar raforku-
málaskrifstofu 1947. Gunnar Böðvarsson lagði
grundvöll að jarðhitarannsóknum á Islandi.
Hann byggði upp rannsóknastarfsemi við jarð-
hitaleit, einkurn með jarðeðlisfræðilegum að-
ferðurn. Á árunum 1955-57 dvaldist hann við
California Institute of Technology og lauk það-
an doktorspróli í jarðeðlisfræði.
Árið 1964 fiuttist Gunnar vcstur urn haf til
Bandaríkjanna og gerðist prófessor í stærð-
fræði og jarðeðlisfræði við Oregon State Uni-
versity í Corvallis. Hann gegndi þvf starfi þar
til 1986 að hann fór á eftirlaun. Auk starfa
sinna hér á landi og f Bandaríkjunum, gegndi
Gunnarmargvíslegum ráðgjafarstörfum á sviði
jarðhitamála fyrir Sameinuðu þjóðirnar, ríkis-
stjórnir rnargra landa, fyrirtæki og stofnanir.
Þcssi störf bera því vitni að Gunnar er mcð-
al helstu brautryðjenda í jarðhitarannsóknum.
ekki aðeins hér á landi heldur um allan heim.
Gunnar Böðvarsson hefur á rnargan hátt
stuðlað að rannsóknum við Háskóla íslands,
einkum á sviði jarðeðlisfræði. Hann var með-
al lVumkvöðla í notkun rafreikna hér á landi
og átti sæti nefnd er gerði tillögur unt efiingu
raunvísinda við Háskóla Islands 1961, cn þær
leiddu síðan til Raunvísindastofnunar háskól-
ans.
Háskóli íslands lclur sér heiður að því að
sæma lærdómsmanninn Gunnar Böðvarsson
hæstum heiðri í raunvísindum og lýsir hann
rétt kjörinn doktor í raunvfsindutn, scientiarum
doctor honoris causa.
Sé það góðu heilli gjöii og vitað.
LeifurÁsgeirsson fæddist á Reykjum í Lund-
arreykjadal 25. maí 1903. Hann lauk stúdents-
prófi frá Menntaskólanum íReykjavik 1927 og
doktorsprófi f stærðfræði við háskólann í Gött-
ingen 1933.
Sama ár varð hann skólastjóri við Héraðs-
skólann á Laugutn í Reykjadal og gegndi hann
því starfi til ársins 1943, er hann var kallaður
til að kenna stærðfræði við Háskóla íslands, en
hér var þá verið að koma af stað námi í verk-
fræði. Leifur var skipaður prófessor við Há-
skóla íslands þegar verkfræðideild var lögfest