Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1988, Side 82
80
Árbók Háskóla íslands
III. Próf og kennsla
Framhaldsnám
Teknar voru til umræðu tillögur raunvísinda-
deildar um breytingu á 115. og 116. gr. reglu-
gerðar fyrir Háskóla íslands. Breyting á 116.
gr. varðar upptöku framhaldsnáms við raun-
vfsindadeild. Allmiklar umræður spunnust um
upptöku framhaldsnáms. Breyting á 115. og
116. gr. var samþykkt samhljóða.
Jónatan Þórmundsson óskaði eftirfarandi
bókunar: „Ég greiði tillögunni atkvæði mitt
í trausti þess að meginstefna og aðalatriði
námstilhögunar og námsmats hins fyrirhugaða
framhaldsnáms í raunvísindadeild verði hið
allra fyrsta mótuð í reglugerðarformi.“
Andri ísaksson tók fram að hann styddi til-
löguna, en vildi jafnframt benda á það að hann
teldi æskilegt að gætt yrði lágmarkssamræm-
is milli deilda um skipulag framhaldsnáms og
heiti prófgráðna. Lagði hann til að Kennslu-
málanefnd yrði falið að huga að slíkri samræm-
ingu í samráði við þær deildir sem hlut eiga að
máli. 02.06.88
Sjávarútvegsfræöi
Lögð var fram til kynningar tillaga frá
prófessorunum Amþóri Garðarssyni, Valdimar
K. Jónssyni, Þorvaldi Gylfasyni og Þórólfi
Þórlindssyni um að komið verði á laggimar
sérstakri stofnun f sjávarútvegsfræðum við Há-
skóla íslands.
Valdimar K. Jónsson mælti fyrir tillögunni.
Var svofelld ályktun samþykkt: „Háskólaráð
felur rektor að skipa sérstaka nefnd til frekari
athugunar á fram kominni hugmynd um Sjáv-
arútvegsstofnun. Nefndin skal skila niðurstöðu
sinni til háskólaráðs fyrir 15. september næst-
komandi." 19.05.88 26.05.88
Endurmenntunarnefnd
I stjóm Endurmenntunamefndar voru kjöm-
ir til tveggja ára Ámi Kristinsson dósent, Jón
Torfi Jónasson dósent, Logi Jónsson dósent,
Stefán Svavarsson lektor og Valdimar K. Jóns-
son prófessor. 19.05.88
IV. Fjármál og byggingamál
Happdrætti Háskóla íslands
Jóhannes L. L. Helgason, forstjóri Happ-
drættis H.I., mætti á fundinn og lagði fram
og útskýrði ársreikninga fyrirtækisins fyrir ár-
ið 1986. Voru reikningamir samþykktir sam-
hljóða. 26.11.87
A fundinn komu Jóhannes L. L. Helgason,
Maggi Jónsson arkitekt og prófessor Ragnar
Ingimarsson, formaður starfsnefndar háskóla-
ráðs um nýbyggingar. Til umræðu voru tekin
byggingaáform Happdrættis Háskóla íslands.
Fyrir lá greinargerð um kostnað, fjármögnun
og framkvæmdir, einnig uppdrættir af fyrirhug-
uðum byggingum.
Rektor lagði fram svofellda tillögu: „Há-
skólaráð samþykkir að hefja byggingu húss
Happdrættis Háskóla íslands á lóð þess við
Tjamargötu 8 og Suðurgötu 5 samkvæmt fyr-
irliggjandi tillögum. Ráðgert er að selja 3. og
4. hæð hússins á byggingartíma, en húsnæði
happdrættisins á 1. og 2. hæð verði tilbúið til
nota fyrri hluta árs 1990.“ Tillagan var sam-
þykkt samhljóða. 25.08.88
Tækjakaupafé Happdrættis H.í.
Háskólaráð skipaði vinnunefnd til að undir-
búa úthlutun tækjakaupafjár. í nefndina voru
skipaðir prófessoramir Valdimar K. Jónsson,
formaður, Þórólfur Þórlindsson og Jóhann R
Malmquist. 07.01.88
Lögð var fram tillaga um skiptingu tækja-
kaupafjár 1988 ásamt greinargerð undirbún-