Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1988, Page 87
Kaflar úr gerðabókum háskólaráðs
85
frá. Akvörðun háskólaráðs liggur fyrir, og eng-
in ný gögn hafa verið lögð fram sem geti orð-
ið grundvöllur breyttrar afstöðu ráðsins." Við
skriflega atkvæðagreiðslu var dagskrártillagan
samþykkt með 9 atkvæðum gegn 5. Tveir seðl-
ar voru auðir. 05.05.88
Sjúkraþjálfun
Samþykkt var með 11 samhijóða atkvæðum
að 18 nemendum verði heimilað að setjast á 1.
námsár í sjúkraþjálfun haustið 1988.
28.04.88
Tannlæknadeild
Forseti tannlæknadeildargerði grein fyrirtil-
lögu deildarinnar um fjöldatakmarkanir nem-
enda á 2. námsmisseri. Tillaga deildarinnar er
að mest 5 öðlist rétt til áframhaldandi setu í
deildinni eftir janúar 1989.
Samþykkt með 12 atkvæðum gegn 1 að 7
nemendum skuli heimilað að setjast á vormiss-
eri 1. námsárs íjanúar 1989.
07.04.88 28.04.88
Fram voru lagðar tvær tillögur um breytingu
á 108. gr. reglugerðar Háskólans varðandi sam-
keppnispróf stúdenta á 1. námsári í tannlækna-
deild.
Fyrri tillagan, frá tannlæknadeild, svohljóð-
andi:
108. gr. reglugerðar hljóði svo:
„Nú er fjöldi stúdenta sem stenst samkeppn-
ispróf á fyrsta ári meiri en svo að veita megi
þeim öllum viðunandi framhaldskennslu við
aðstæður á hverjum tíma, og getur háskóla-
ráð þá, eftir rökstuddri tillögu lannlæknadeild-
ar, takmarkað fjölda þeirra sem halda áfram
námi. Ákvörðun háskólaráðs skal tilkynna fyr-
ir upphaf þess háskólaárs sem próf eru haldin.
Réttur stúdenta til framhaldsnáms er miðaður
við árangur prófa í lok 1. misseris 1. námsárs.
Þegar tveir eða fleiri nemar hljóta sömu með-
aleinkunn og velja þarf á milli þeirra, ræður
forgangsröðun einkunna, eins og tilgreint er í
kennsluskrá tannlæknadeildar árhvert.
Eftirfarandi skýringar komi í næstu kennslu-
skrá: Sá nemi sem hefur hæstu einkunn í verk-
legri fonnfræði heldur áfram námi. Ef tveireða
fleiri nemar hafa sömu einkunn í þeirri grein
þá ræður hæsta einkunn í almennri efnafræði,
því næst hæsta einkunn í inngangi að líffæra-
og lífeðlisfræði, og að síðustu hæsta einkunn í
fræðilegri l'ormfræði."
Síðari tillagan var frá Valborgu Snævarr,
svohljóðandi:
„Nú er fjöldi stúdenta sem stenst samkeppn-
ispróf á fyrsta ári meiri en svo að veita megi
þeim öllum viðunandi framhaldskennslu við
aðstæður á hverjum tíma, og getur háskóla-
ráð þá, eftir rökstuddri tillögu tannlæknadeild-
ar, takmarkað fjölda þeirra sem halda áfram
námi. Ákvörðun háskólaráðs skal tilkynna fyr-
ir upphaf þess háskólaárs sem próf eru hald-
in. Réttur stúdenta til framhaldsnáms er mið-
aður við árangur prófa í lok 1. misseris. Þegar
tveir eða fleiri nemar hafa sömu meðaleinkunn
og velja þarf á milli þeiiTa ræður forgangsröð-
un einkunna á þann hátt, að sá nemi sem hefur
hæstu einkunn í verklegri formfræði heldur á-
fram námi. Ef tveir eða fleiri nemar hafa sömu
einkunn í þeirri grein, ræður hæsta einkunn í
almennri efnafræði, því næst hæsta einkunn í
inngangi að líffæra- og lífeðlisfræði og að sfð-
ustu hæsta einkunn í fræðilegri formfræði.'1
Varaforseti tannlæknadeildargerði grein fyr-
ir tillögu deildarinnar og Valborg Snævarr
gerði grein fyrir afstöðu stúdenta. Skrifleg at-
kvæðagreiðsla fór fram um tillögumar. Tillaga
tannlæknadeildar hlaut 8 atkvæði, tillaga Val-
borgar hlaut 7 atkvæði. Einn atkvæðaseðill var
auður.
Valborg Snævarr óskaði eftirfarandi bókun-
ar:
„Fulltrúar stúdenta fagna þeirri ákvörðun
háskólaráðs að leggja lil við menntamálaráð-
herra að ákvæði um hlutkesti í tannlækna-
deiid verði numið úr 108. gr. háskólareglu-
gerðar. Jafnframt harma stúdentar það að ekki
var fallist á þau sjónarmið stúdenta að hafa
beri ákvæði unt framkvæmd fjöldatakmörkun-
ar eins skýr og kostur er á. Stúdentar töldu
fulla þörf á að láta fylgja í reglugerðarákvæð-
inu þá forgangsröðun einkunna sem úrslitum