Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1988, Blaðsíða 88
86
Árbók Háskóia íslands
eigi að ráða ef sú staða kemur upp að tveir
eða fleiri nemendur hafa sömu meðaleinkunn.
Er óskað eftir þessari bókun til að Ijóst sé,
ef og þegar upp koma vafamál vegna þessa
reglugerðarákvæðis, hverskoðun fulltrúastúd-
enta var þegar reglugerðarákvæði þetta var til
umræðu í háskólaráði. Er þess jafnframt ósk-
að að bókun þessi verði látin fylgja er er-
indi þetta verður sent menntamálaráðherra."
Valborg SnævaiT
Skúli H. Skúlason
Anna M. Urbancic
28.04.88
Lögð voru fram erindi frá A., tannlækna-
nema, dags. 11. þ.m., og B., tannlæknanema,
dags. 14. þ.m. A. var einn þriggja nemenda sem
jafnir urðu í 6., 7. og 8. sæti við samkeppnis-
próf í lok haustmisseris 1. árs, en samkvæmt
samþykkt háskólaráðs frá s.l. vori skyldi 7
nemendum heimilt áframhaldandi nám á vor-
misseri. Samkvæmt reglugerð var hlutkesti
varpað um hverjir tveir hinna þriggja nemenda
skyldu hljóta sæti nr. 6 og 7. Svo fór að A.
varð í 8. sæti. Fer hann nú fram á að honum
verði heimilað að halda áfram námi. B. varð í
9. sæti á sama samkeppnisprófi og fer fram á
að honum verði heimilt að setjast á vormisseri
1. árs.
Rektor hóf umræður og fjallaði í fyrstu um
erindi A. Lagði hann fram nokkur atriði sem
umræðugrundvöll um þetta mál, þar á meðal
hugsanlega valkosti við tilhögun á vali nem-
enda í tannlæknadeild þegar tveir eða fleiri
með sömu meðaleinkunn keppa um síðasta
sæti. Forseti tannlæknadeildar gerði grein fyr-
ir afstöðu tannlæknadeildar á máli þessu. Hann
óskaði þess að eftirfarandi yrði fært til bók-
ar:
„Tannlæknadeild harmarummæli um fjölda-
takmarkanir í tannlæknadeild, sem höfð eru
eftir forseta viðskiptadeildar Háskóla íslands
í frétt í Morgunblaðinu 12. febrúar s.I. Deild-
in telur fundi háskólaráðs rétta vettvanginn til
skoðanaskipta um fjöldatakmarkanir og hnútu-
kast um rekstur tannlæknadeildar í opinberum
fjölmiðlum ekki lil þess fallið að auka hróð-
ur Háskólans." Forseti tannlæknadeildar taldi
að deildin væri reiðubúin að fallast á að A.
verði veittur forgangur að setu á vormisseri
1989.
Forseti viðskiptadeildar óskaði eftirfarandi
bókunar: „Eg harma bókun forseta tannlækna-
deildar um ummæli mín í Morgunblaðinu 12.
febrúar s.l. og tel að þær röksemdir sem þar
koma fram um nýtingu á tækjakosti tannlækna-
deildar varði allan almenning, sem lagt hefur fé
til deildarinnar."
Eftir almennar umræður fór fram skrifleg
atkvæðagreiðsla um beiðni A. um að honuni
verði heimilað að halda áfram námi á 1. náms-
ári í tannlæknadeild. Var það samþykkt með 12
atkvæðum gegn 2.
Á fundinum hafði verið lagt fram álit Lög-
skýringamefndar um erindi stúdentanna.
Forseti tannlæknadeildar tjáði sig um erindi
B. Var erindi hans hafnað með 7 atkvæðum
gegn 1, atkvæði forseta viðskiptadeildar.
Forseti tannlæknadeildar óskaði eftirfarandi
bókunar: „Tannlæknadeild harmar þá ákvörð-
un háskólaráðs að heimila 8 nemendum áfram-
haldandi nám í tannlæknadeild á vormisseri
1988. Sú ákvörðun leiðir til þess að klinísk
þjálfun nemenda við tannlæknadeild Háskóla
íslands verður styttri en almennt er krafist í
tannlæknaskólum í nálægum löndum og geng-
ur því í berhögg við yfirlýsta menntastefnu Há-
skólans.“
Forseti viðskiptadeildar óskaði eftirfarandi
bókunar: „Ég tel að tannlæknadeild hafi tals-
vert svigrúm til að ákveða afkastagetu sfna og
geti þeir vel ráðið við kliníska kennslu 8 manna
á fyrsta ári eins og upphaflega var gert ráð fyrir
og staðfest er af Sven Helm og sérstakri nefnd
lö.júní 1985.“ 18.02.88
Heilsugæslustöö
Lögð var fram til kynningar áfangaskýrsla
frá nefnd, sem skipuð var til að kanna mögu-
leika á því að sett yrði á stofn heilsugæslustöð
fyrir stúdenta og starfsfólk Háskólans.
17.12.87