Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1988, Side 89
Kaflar úr geröabókum háskólaráös
87
Byggingasjóöur stúdenta
Fram var lögð tillaga um ái-visst fram-
lag Háskóla íslands í Byggingasjóð stúdenta,
svohljóðandi: „Háskólaráð Háskóla íslands á-
kveður að greiða árlega fjárframlag til Bygg-
ingasjóðs stúdenta sem vera skal jafnt þeirri
fjárhæð sem Stúdentaráð og Félagsstofnun
stúdenta greiða f sjóðinn af innritunargjöldum
stúdenta. Nemur sú fjárhæð 25% af heildarupp-
hæð innritunargjalda.
Fyrir hvert ársframlag fær Háskólinn ráð-
stöfunarrétt á einni námsmannaíbúð án end-
urgjalds. íbúðunum verður úthlutað eftir regl-
um, sem háskólaráð setur. Ákvörðun þessa skal
endurskoða að fimm árum liðnum.“ Samþykkt
samhljóða. 29.10.87
Innritunargjald
Fram var lögð tillaga Stúdentaráðs og Fé-
lagsstofnunar slúdenta um skráningargjald ár-
ið 1988, að gjaldið verði kr. 4.200. Ennfrem-
ur var lögð fram tillaga yfirstjómar um 1.000
kr. pappfrsgjald fyrir alla stúdenta og að auki
1.000 kr. gjald af nýstúdentum fyrir kennslu-
skrá og skfrteini. Voru tillögumar samþykktar
samhljóða. 28.04.88
IX. Tengsl við aðrar stofnanir
Háskólinn á Akureyri
Lagt var fram bréf frá menniamálanefnd efri
deildar Alþingis, þar sem beðið var um umsögn
um frumvaip til laga um Háskóla á Akureyi'i.
Ákveðið að skipa millifundanefnd til að vinna
að svari háskólaráðs. í nefndina voru skipað-
ir Jónatan Þórmundsson prófessor, Jón Torfi
Jónasson, núverandi formaður Kennslumála-
nefndar, Halldór Guðjónsson kennslustjóri og
Bjami Ámason, stud. jur. 04.02.88
Lögð voru fram drög millifundanefndar að
umsögn Háskóla íslands um frumvarp til Iaga
um Háskólann á Akureyri. Forseti lagadeildar
gerði grein fyrir hinu fram lagða skjali, en hann
var formaður millifundanefndar. Lof var borið
á skjóta afgreiðslu nefndarinnar. Umsögnin, lítt
breytt, var samþykkt samhljóða. 18.02.88
»Háskólastigið“
Lagt fram bréf mm, dags. 20. þ.m. Ráðu-
neytið hefur skipað í samstarfsnefnd „háskóla-
stigsins". Formaður nefndarinnar til 15. sept-
ember 1988 er prófessor Sigmundur Guð-
bjamason, rektor Háskóla íslands. Varafor-
maður til sama tíma er Ami Gunnarsson skrif-
stofustjóri. (Sjá einnig í I. kafla, „Löggjöf um
háskólastig“.) 29.10.87
Vísindaráð
Magnús Magnússon prófessor var tilnefnd-
ur fulltrúi háskólaráðs f stjóm Vísindaráðs til
fjögurra ára. 12.09.87
Náttúruverndarþing
Fulltrúi háskólaráðs á Náttúruvemdarþing
var kjörinn Amþór Garðarsson prófessor.
24.09.87
Norræna húsið
Þórir Kr. Þórðarson prófessor var endurkjör-
inn í stjórn Norræna hússins til næstu þriggja
ára. Varamaður í stjóm Norræna hússins var
kjörinn Sveinn Skorri Höskuldsson prófessor.
15.10.87 12.11.87