Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1988, Síða 91
9
Annáll
Rektorskjör
Föstudaginn 8. aprfl 1988 fór fram rektors-
kjör. Var háskólarektor Sigmundur Guðbjama-
son endurkjörinn, og hlaut hann 82,18%
greiddra atkvæða. Sjá um rektorskjör 8. kafla
hér að framan, „Kafla úr gerðabókum háskóla-
ráðs“.
Hátíöir
Háskólahátíð var haldin í Samkomuhúsi Há-
skólans við Hagatorg laugardaginn 25. júní
1988 kl. 2 e.h. að viðstöddum forseta íslands,
ráðherrum og öðrum gestum. Hátíðin hófst
með þvf að Anna Guðný Guðmundsdóttir, Páll
Einarsson og Sigurður Ingvi Snorrason léku Ég
leitaði hlárra blóma eftir Gylfa Þ. Gíslason og
Friihlingsstimmen eftir Johann Strauss á klar-
inettu, píanó og kontrabassa. Þá lýstu deild-
arforsetar, prófessoramir Þórólfur Þórlinds-
son, Amþór Garðarsson og Þórir Einarsson
kjöri heiðursdoktora, þeiira dr. Jóhannesar
Nordals, dr. Gunnars Böðvarssonar, dr. Leifs
Asgeirssonar og Jónasar Haralz. Síðan flutti
rektor Háskóla íslands, prófessor Sigmundur
Guðbjamason ræðu um málefni Háskólans og
ávarpaði kandídata. Þá afhentu deildarforsetar
kandídötum prófskírteini. Hátíðinni lauk með
söng Háskólakórsins undir stjóm Árna Harð-
arsonar. — Að lokinni háskólahátíð buðu rekt-
orshjónin háskólaráði, heiðursdoktorum, mök-
um þeirra og öðrum gestum til kaffidrykkju í
Skólabæ, Suðurgötu 26.
Athöfn til brautskráningar kandídata fór
fram í Samkomuhúsi Háskólans við Hagatorg
laugardaginn 31. október 1987, og hófst hún
kl. 2 e.h. Athöfnin hófst með því að Gunnar
Guðbjömsson söng einsöng, en Guðbjörg Sig-
urjónsdóttir lék með á píanó. Háskólarektor,
dr. Sigmundur Guðbjamason ávarpaði kand-
ídata og deildarforsetar afhentu prófskfrteini.
Að lokum söng Háskólakórinn undir stjóm
Áma Harðarsonar.
Athöfn til brautskráningar kandídata fór
fram í Samkomuhúsi Háskólans við Hagatorg
laugardaginn 27. febrúar 1988, og hófst hún
kl. 2 e.h. Athöfnin hófst með því að Elín Ósk
Óskarsdóttir söng einsöng, en Ólafur Vign-
ir Albertsson lék með á píanó. Háskólarektor,
dr. Sigmundur Guðbjamason ávarpaði kand-
ídata og deildarforsetar afhentu prófskírteini.
Að lokum söng Háskólakórinn undir stjóm
Áma Harðarsonar.
Síödegisboö rektorshjónanna
Sunnudaginn 8. nóvember 1987 buðu rekt-
orshjónin, prófessor Sigmundur Guðbjamason
og frú Margrét Þorvaldsdóttir, öllum starfs-
mönnurn Háskólans til samverustundar í Odda
kl. 3:30-5 e.h. Flutti rektor ávarp og prófessor
Jónas Hallgrímsson ræðu: „Líkamlegt og and-
legt heilbrigði."
Aldarminning Alexanders
Jóhannessonar
Rektorshjónin héldu sitt árlega kaffiboð að
vori fyrir alla starfsmenn Háskólans í Odda
sunnudaginn 15. maí 1988. Þótt þessi dagur
væri fyrsti heiti og sólbjarti sumardagur ársins
var samsætið fjölsótt. Að þessu sinni var sam-
koman helguð aldarminningu Alexanders Jó-
hannessonar háskólarektors. Martial Nardeau
lék á flautu og Þórir Kr. Þórðarson hélt minn-
ingarerindi (og birtist það í Félagsbréfum um
haustið).
Þá var gerð kvikmynd um sögu Alexand-
ers Jóhannessonar og Háskólans að frum-