Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1988, Page 99
Annáll
97
mættu nýtast kennurum, starfsfólki og nem-
endum við Háskóla íslands sem allra best. í
þessu skyni var tekið saman Fréttabréf um
styrki, sem kom út í nóvember 1987. Við gerð
þessarar samantektar var haft samband við öll
sendiráð og ræðismannsskrifstofur, Mennta-
málaráðuneytið, Norræna félagið, sendikenn-
ara og fleiri aðila. Hefur Fréttabréfi um styrki
verið tekið mjög vel og töluvert hefur borist af
upplýsingum um styrki sem nefndinni var ekki
kunnugt um þegar Fréttabréfið var tekið sam-
an. Upplag fyrsta tölublaðs er nú á þrotum og
er ætlunin að annað tölublað komi út í vor.
Formaður Alþjóðasamskiptanefndar er pró-
fessor Þórólfur Þórlindsson, en framkvæmda-
stjóri er Þóra Magnúsdóttir.
VII. Ýmis mál í undirbúningi
1. Háskólaútgáfa. Könnun Kennslumála-
nefndar á möguleikum háskólaútgáfu og tillög-
ur þar að lútandi eru í athugun hjá háskólaráði
og eru viðbrögð jákvæð.
2. Háskólaútvarp. í undirbúningi eru til-
lögur um háskólaútvarp á rás 2 hjá RÚV.
Útvarpsstjóri hefur tekið mjög vel slíku erindi.
3. Reiknistofnun. Starfsemi Reiknistofnunar
hefur verið endurskipulögð og verða málefni
Reiknistofnunar tekin til umfjöllunar í maí. Ný
stefna í tölvumálum Háskólans er í mótun.
4. Tækjavæðing. Aformað er að taka upp
markvissari vinnubrögð við ráðstöfun fjár til
kennslu og rannsókna. Gert er ráð fyrir að
10-20% af framkvæmdafé frá Happdrætti Há-
skólans renni í tækjakaupasjóð. Þróunamefnd
er falið að móta vinnureglur fyrir úthlutun úr
tækjakaupasjóði. Deildir, námsbrautir, skorir
og stofnanir munu sækja um fé til tækjakaupa
og gera grein fyrir þörf og nýtingu tækjanna.
Gerð verður áætlun til allt að fimm ára með ár-
legri endurskoðun, en með slíku vinnulagi ætti
að verða auðveldara að afla viðameiri tækja,
einkum ef um væri að ræða samnýtingu tækja
af hálfu fleiri deilda eða námsbrauta.
5. Áformuð er kynning á merkum Háskóla-
mönnum. Gerð verður heimildarmynd um
prófessor Alexander Jóhannesson, en á þessu
ári eru 100 ár liðin frá fæðingu þessa merka
manns.
Lokaorð
Háskóli íslands hefur forystuhlutverk á sviði
menntunar og vísinda í landinu. Háskólinn
verður sjálfur að hafa allt frumkvæði að end-
urbótum og breytingum á eigin starfsemi,
í kennslu og rannsóknum. Háskólakennarar
verða sjálfirað sannfæra stjómvöld og almenn-
ing um mikilvægi menntunar og rannsókna og
veita þeim aukna hlutdeild og þátttöku í við-
fangsefnum okkar með upplýsingum og kynn-
ingu.
Hagur Háskólans hefur batnað, skilningur og
stuðningur hefur aukist. Ástæðan er sú að það
hefur tekist að virkja fjölda kennara, sérfræð-
inga og annarra starfsmanna Háskólans til að
vinna saman að framfaramálum okkar. Það hef-
ur tekist að glæða áhugann og eldmóðinn sem
allt slíkt starf nærist á.