Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga - 01.10.1922, Qupperneq 14

Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga - 01.10.1922, Qupperneq 14
& Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga. ósjaldan hafa komið fyrir, að hluthafar hafi orðið fyrir ærnum skellum af víxilábyrgðum eða sjálfskuldar- ábyrgðum, sem þeir hafa tekið á sig fyrir félögin. Og mörg félögin munu hafa endað með tjóni fyrir skuld- heimtumenn þeirra. Orsakirnar til þessara ófara eru vit- anlega margvíslegar. En ein ástæðan hefir sjálfsagt verið sú, að löggjöfin lét stofnun og starfsemi þessara félaga því nær algjörlega afskiftalausa. Hún lét menn vera nokkurnveginn sjálfráða um það, hvernig þeir höguðu stofnun og stjórn hlutafélaganna. Eg tel það vafalaust að af því hafi leitt að oft hafi verið vandað miður en skyldi .til stofnunar félaganna hér hjá oss og oft hafi félögunum af þeim orsökum verið gálauslegar stjórnað en vera bar, og að þetta, annaðhvort eða hvorttveggja, hafi orðið þeim að aldurtila. Reynslan hefir hver\7etna sýnt það, að þó hlutafélögin oft bæði séu hagfelt og gagnlegt félagsform, þá eru þó líka því félagsformi samfara ýmsir verulegir annmarkar. pað er hætt við að það verði misbrúkað til ýmiskonar fjárglæfra. Persónulega ábyrgðin er og hefir lengi verið ef svo mætti seg'ja líftaugin í öllu viðskiftalífinu. það, að menn eiga á hættu að verða að svara til skuldbindinga sinna með öllum eignum sínum, hvetur menn til að sýna meiri varkárni og fyrirhyggju í ráðstöfunum sínum, bæði þegar um stofnun skuldbindinga er að ræða og eins þegar um efndir skuldbindinga er að ræða. í hlutafélögunum er ábyrgðin takmörkuð. Og tak- markaða ábyrgðin gerir menn fyrst og fremst kærulaus- ari. þetta gildir bæði um hluthafann og um stjórnendur félagsins. Sá sem leggur fé í hlutafélag við stofnun þess eða kaupir hlut í því síðar, veit það, að hann leggur aldrei meira á hættu en upphæðina, sem hann skrifar sig fyrir til félagsins eða sem hann greiðir fyrir hlut- inn. Hann sést því ekki eins fyrir og sá, sem gengur í félag, þar sem hann veit, að hann hættir ef til vill öllum eignum sínum. Líku máli gegnir um stjórnendur félagsins. þeir eiga oft lítið á hættu sjálfir þó illa fari.

x

Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga
https://timarit.is/publication/589

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.