Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga - 01.10.1922, Blaðsíða 29

Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga - 01.10.1922, Blaðsíða 29
Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga. 23 sýnir tap. Frá þessari aðalreglu, að ágóði, sem fenginn er, verði fyrst að ganga til að vinna upp tap, sem orðið er, áður en hann kemur til úthlutunar til hluthafa, gera lögin tvær undantekningar. önnur er sú, að hafa má sjóði til að vinna upp tap, og nota þá til þess, þó að tekjuafgangur verði. Ef þessir sjóðir hrökkva til að vinna upp tapið, má því úthluta ágóðanum óskertum. þetta er dálítið varhugavert ákvæði, en það er þó tiltölulega mein- laust í samanburði við hina undantekninguna. Hún er í því fólgin, að félagið má hafa sérstaka sjóði til að tryggja greiðslu arðs, er illa gengur, til þeirra sjóða má taka til að greiða arð jafnvel þó að reikningshalli verði. M. ö. o. þó félagið hafi tapað öllu hlutafénu á ánnu, þá getur það samt með þessu móti greitt arð. Eg hygg, að slíkt ákvæði finnist hvergi annarsstaðar í hlutafélagalögum.*) í VI. kafla laganna eru ákvæði um slit félags, að mestu sniðin eftir dönsku lögunum. þó er þar sumstaðar breytt um til mikilla bóta. þannig er t. d. skilanefnd fé- lagsins óheimilt skv. 41. gr. að greiða hluthöfum út hluta- fé fyr en skuldir eru greiddar eða trygging sett fyrir greiðslu þeirra, ákvæði, sem vitanlega er mjög þýðingar- mikið fyrir skuldheimtumenn félagsins, en vantar í dönsku lögin. Um tvo síðustu kafla laganna, VII. kaflann um er- lend hlutafélög og VIII. kaflann, sem hefir að geyma ákvæði um refsingar o. fl., skal eg ekki tala neitt nánar. Aðeins vil eg taka það fram, að eg sakna úr síðasta kafl- anum ákvæða um skaðabótaábyrgð stofnenda, stjórn- enda og skilanefndamanna félags. Eins og eg hefi getið um áður, er víðast hvar lögð ströng skaðabótaábyrgð á þá, og sú ábyrgð hefir vafalaust meiri áhrif en refsi- ábyrgðin. þó að margir gallar séu á þessum lögum, þá er því samt ekki að neita, að þau eru mikil framför frá því sem áður var. Og verði þeim vel framfylgt, geta þau *) það var sett inn í frumvarpið á alþingi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54

x

Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga
https://timarit.is/publication/589

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.