Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga - 01.10.1922, Blaðsíða 36

Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga - 01.10.1922, Blaðsíða 36
St j órnartí ðindin. Eins og kunnugt er, þá er ríkisstjórninni stjórnskipu- lega skylt að birta öll ný lög. Birtingarmátinn er lög- ákveðinn og í því fólginn, að prenta á ný lög orði til orðs í A-deild Stjórnartíðindanna og síðan (jafnframt) geta þess í B-deild, að lögin séu komin út í A. þetta er vitanlega áskilið, til þess að tryggja ríkis- borgurunum og öðrum, sem lögunum eiga að hlýða, það, að lagaframkvæmdarvaldið fari eigi öðru fram gagnvart þeim en því, sem boðið eða leyft er í lögum. Enda er litið svo á, að óbirtum eða ólöglega birtum lögum verði eigi beitt gegn öðrum en þeim, sem sanna má, að vitað hafi um óbirtu eða ólöglega birtu lögin. En það er í raun- inni sama og að lögunum verði alls eigi beitt, því að það mun langoftast ókleyft að sanna, að maður hafi vitað af slíkum lögum. pví verður þegar af þessari ástæðu að vænta þess, að lög séu löglega birt svo fljótt, sem frekast má verða. En auk þess herðir önnur ástæða á kröfu um bráða birtingu nýrra laga. Hún er sú, að ný lög ganga yfirleitt ekki í gildi fyr en 12 vikum eftir að þess hefir verið getið í B-deild Stjórnartíðindanna, að lögin séu prentuð í A- deild. — það nægir ekki að birta lögin í Lögbirtinga- blaðinu. Slík „birting“ skiftir yfirleitt engu máli að lög- um. — Dráttur á lögmæltri birtingu nýrra laga í Stjórn- artíðindunum merkir því yfirleitt sama og dráttur á framkvæmd laganna. Langlengst hefir bæði A og Bdeild Stjórnartíðind- anna komið út á lausum blöðum, jafnóðum og efni varð til. En fyrir nokkrum árum var tekið upp á því, að gefa hvora deildina um sig út í heftum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54

x

Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga
https://timarit.is/publication/589

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.