Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga - 01.10.1922, Blaðsíða 20

Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga - 01.10.1922, Blaðsíða 20
14 Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga. stofnun hlutafélaga. Eru þau bæði fólgin í því, að fyrir- skipuð er viss aðferð við stofnun hlutafélaga og að lögð er rík ábyrgð á stofnendur félagsins. Hvað fyrra atriðið snertir, gera flest hlutafélagalög mun á svonefndri simultansstofnun, þ. e. þegar stofnendurnir taka alla hlut- ina sjálfir, og svonefndri successivstofnun þegar leita á til annara en stofnendanna um hluttöku í félaginu. I fyrra tilfellinu eru reglurnar vægari. Yfirleitt er þá lát- ið sitja við reglurnar um stofnsamningnn. þær eiga að vera næg trygging fyrir stofnendurna hvern gagnvart öðrum. Jafnframt eru þá sumstaðar ákvæði, sem setja viss skilyrði fyrir því, að framsal á hlutum í félaginu sé bindandi fyrir framsalshafa, t. d. 18. gr. norsku hluta- félagalaganna og 14. gr. í nefndafrumvörpunum dönsku. Er þetta gjört í því skyni, að komið verði í veg fyrir að farið sé í kring um ákvæðin um successivstofnun með þeim hætti, að stofnendur skrifi sig til málamynda fyrir öllum hlutunum og bjóði þá síðan til kaups mönnum, sem ókunnugt er um atvikin að stofnun félagsins. Annars er þess og að geta, að nokkuð vafamál hefir þótt, hversu rétt það væri að gera þennan mikla mun á simultan- og successivstofnun. Stundum, t. d. í nefndafrumvörpunum dönsku, er aðgreiningin bygð á öðru en því, hvort stofn- endurnir taka hlutina alla sjálfir eða eigi, þ. e. á því, hve margir gerast hluthafar. Séu hluthafarnir sérlega fáir (10 eða 15 skv. frv.), segja menn, að komast megi af með vægari reglurnar, því þá megi vænfca þess, að þeir séu allir kunnugir stofnun félagsins, enda þótt þeir séu ekki allir stofnendur.. Hinsvegar séu reglurnar um simultanstofnun ekki sem tryggilegastar, því þeir sönnu stofnendur geti safnað saman mörgum mönnum á stofn- fundinn og látið þá undirrita stofnsamninginn athuga- lítið. — Strangari reglumar, sem víðast hvar gilda um successivstofnun, og skv. nefndafrumvörpunum dönsku áttu að gilda ef hluthafar voru fleiri en 10 eða 15, eru í stuttu máli fólgnar í því, að ekki má leita hlutafjár- framlaga nema skv. opinberri auglýsingu þar sem skýrt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54

x

Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga
https://timarit.is/publication/589

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.